Viljum ekki versla nú
Lag Vatnsdælingastemma - Bj.Þ. 838
Viljum ekki versla núvert er ei á meðandanskra veljum vera hjúmeð vaðið fyrir neðan
Heimildir og samhengi
Úr ritgerð Ásgeirs Jónssonar, SkjalHáskóli Íslands (opnast í nýjum flipa):
,,1754-55 féllu margir úr hungri og landsmenn sameinuðust gegn Hörmöngurunum sem hrökkluðust frá Íslandsversluninni árið 1758.
Nú áleit Skúli lag að ganga á milli bols og höfuðs á einokuninni. Hann lagði fram frumvarp til þess að landsmenn sjálfir tækju að sér verslunina:
,,Hvers vegna eigum vér að láta erlenda menn eina hafa atvinnu af íslenskri verslun? Hvers vegna eigum vér að láta þá mala kornið, baka brauðið, byrla ölið, brenna brennivínið, tilreiðat tóbakið, smíða mestöll járn- og málmaáhöld til almenningsnota, spinna og vefa líndúkana, snúa færin, slátra fé voru og salta fisk vorn? Vér höfum sjálfir nægilegt vinnuafl til alls þessa, ef vér aðeins viljum færa oss það í nyt. Verslunin getur aldrei orðið landinu til verulegrar farsældar fyrri en landsmönnum sjálfum er gefið færi á að taka þátt í henni".
Hins vegar kunnu landsmenn lítið til verslunar og vantaði þar að auki rekstrarfé en Skúli kunni ráð við því.
Hann vildi að tekið yrði lán í Kaupmannahöfn og jarðeignir landsins settar að veði. Þannig fengist fé til nýrra fjárfestinga og tryggt yrði að íslenski landeigendaaðallinn fengi hlutdeild í verslunargróðanum".