Á Hólum pilta fjóra finnur
Lag Mangi raular, músin tístir - Bj.Þ. 903
Á Hólum pilta fjóra finnurog fækkar enn nú meir.Viðeyjarstofa og vígður Finnur.Í Vatnsfirði Hjalti deyr.
Heimildir og samhengi
Hafís við Norðurland og engin sigling þangað.
Matarskortur á Hólum, skólasveinum vísað burt, öllum nema þeim fjórum sem voru á síðasta skólaári.
Síðan varð ekkert skólahald 1756-7 af sömu ástæðu.
Viðeyjarstofa reis. Skúli flutti inn 1755.
Reykholtsprófastur, Finnur Jónsson, verður (loksins) Skálholtsbiskup.
Dr. Jón Stefánsson, Úti í heimi, bls. 121: „Harboe gekk fram hjá honum við tilnefningu til biskups í Skálholti, fékk Ólaf Gíslason skipaðan sem biskup. Þetta gerði Harboe til þess að Finnur gæti gefið sig allan við að rita kirkjusögu Íslands, en ekki af því að hann liti svo á að Ólafur væri hæfari sem biskup en Finnur. Kirkjustjórnarráðið sá svo um það að Finnur fengi eins há laun við að semja kirkjusöguna og Skálholtsbiskup hafði".
Lést séra Hjalti Þorsteinsson prestur og listamaður í Vatnsfirði, f. 1665. (1697). Annálar.