Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 18. öld
  3. 1750
1750
1750

Fyllt hefur ekki fjórða tuginn

Hljóðbrot0:00

Lag Langt fyrir utan ystu skóga

FFyllt hefur ekki fjórða tuginnfógeti íslenskur settur nýrekkert vantar upp á duginnaldrei Skúli af hólmi flýr.

Á undan sinni samtíð skrunarsagður frekja og vera kuum hans dugnað mikið munarþótt megi´ ei stýra veðrinu.

Glúmur Gylfason · 1750

Heimildir og samhengi

Saga frá Skagfirðingum I, 81: ,,Skúli fékk veitingarbréf frá konungi fyrir landfógetaembættinu ...og skorti vetur á fertugan. Má af því marka hve mikinn byr hann hafði, þar sem honum skyldi slíkt veitt vera mitt í því hann átti í deilum við samlenda menn konunginum, og þó agasamt stundum innanlands og marga öfundarmenn en hann hafði þá sýslan fyrstur íslenskra manna og þar með svo mikinn framgang annan, sem enginn hefir haft hér af eigi hærra standi ...og afrekaði marga hluti að því skapi undarlega allt til elli, því að hann skorti eigi áræði né framkvæmdir".

SkjalHáskóli Íslands (opnast í nýjum flipa)

FréttRÚV (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1750

  • Lesi fyrst og læri svo
  • Bach í ár þótt yrði nár
← 1750Lesi fyrst og læri svo1750 →Bach í ár þótt yrði nár