Lesi fyrst og læri svo
Lag Vorið góða, grænt og hlýtt
Lesi fyrst og læri svolýkst þá upp fyr'ir barni.Efst á Heklu eygjum tvo,Eggert þar og Bjarni.
Heimildir og samhengi
Kongl. rescripti um confirmationina, undirskrifað af L. Harboe í Skálholti 5. ágúst 1744, birt með Alþingisbók 1750, 509: ,,So að ungdómurinn megi uppvekjast til að vilja læra með kostgæfni að lesa á bók, þá viljum vér allranáðugast að eitt barn að minnsta kosti, hvar einhvör er læs til heimilis ...læri að lesa á bók áður kemur til confirmation”. Sjá 1688.
Gengu á Heklu 20/6 Bjarni Pálsson (1719-1779), síðar landlæknir, og Eggert Ólafsson (1726-1768) skáld og verðandi varalögmaður. Báðir síðar ,,konglegir náttúruskoðarar".
Þetta var í fyrsta sinn svo sögur hermi að gengið væri á Heklu.
Áminntir voru þeir fyrir ofdirfskuna af Ólafi Gíslasyni Skálholtsbiskupi. Sjá þar um 1752.
Almenn hræðsla við Heklu stafaði af nálægð hennar við Helvíti þar undir, sbr. Gunnarshólma Jónasar og þýskt blótsyrði.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Hér gætir ,,upplýsingarinnar" sem Dönum barst um þýska frá Frökkum um þetta leyti. Heitið vísar til ,,myrkurs miðalda" sem léttir með barna- og alþýðufræðslu, vægari dómum báðum megin grafar, frjálsræði í verslun, blaðaútgáfu, félgamyndun, o.s.frv.
Tilvísun: Ingi Sigurðsson, Erlendir straumar, bls. 26.