Magnús Ara á ,,fleygi"-ferð
Lag Minna strengja hljómur hreinn - Bj.Þ. 858
eða Yfir kaldan eyðisand
Magnús Ara á ,,fleygi"-ferðfærra hugði að seglummundi að hafa með sér sverðminna skeytti neglum.
Heimildir og samhengi
+ Magnús mælingamaður Arason, fyrr herforingi og bar e.t.v. þann titil þá enn, en mælingastarf hans var á vegum stjórnarinnar. Hann sagður sjaldan skilja við sig sverðið og samkvæmt sögum voru þeir fv. lm., Oddur Sigurðsson ,,saxi gyrðir" á Rifi 1725, þegar Jóhann Gottrup átti að hafa notið aðstoðar Magnúsar við að handtaka Odd, en sverð var hluti af embættisbúningi lögmanns.
1718 brá Oddur lögnmannssverði sínu og skar bróður Magnúsar, Þorleif, - þá skólameistara í Skálholti - skurð í andlit sem kostaði hann 150 rd.
(Heimild, Vigfús Guðmundsson, Breiðabólstaður, bls. 56).
Drykkja Magnúsar fór ekki leynt svo að varla hefur hefur honum verið fleygs vant.
Þegar hann og félagi hans finnast nú drukknaðir við Hrappsey vantaði negluna í bátinn.
Talið að frosið hafi í gatinu er báturinn stóð í fjöru, síðan þiðnað, en báturinn sökk í aðdjúpri vör. (Sbr. Hítardalsannál II, bls. 619).
Árni Óla, Frásagnir, bls. 303, lýsir Magnúsi sem mikilhæfum manni og afkastamiklum við mælingar og kortagerð og telur upp 7 erlend tungumál sem hann kunni.
Þorvaldur Thoroddsen fjallar um Magnús Arason í Landfræðisögunni II, 273-283. Lesbók Mbl. 29. maí 1949.
Ævisaga Breiðfirðings, Jóns Kr. Lárussonar, (1878-1949), getur þess að við stýrimannspróf hans hafi prófdómarinn, undirforingi á varðskipinu Heimdalli, verið skrýddur korða.
Leikfélag Reykjavíkur var stofnað 1897. Fyrsta leikrit sem það setti upp hét ,,Skipið sekkur", sjá neðanskráða slóð: