Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 18. öld
  3. 1729
1729
1729

Illuga galdur báru á brýn

Hljóðbrot0:00

Lag Ó, blessuð sýn - SB 307

IIlluga galdur báru á brýnþótt brenni ei lengur núlönguhaus mat Hjaltdalíná hálfa aðra kú.

Glúmur Gylfason · 1729

Heimildir og samhengi

Veðurgapi:
Tvítugur piltur, Illugi nefndur, sannur að sök sem metin var 1 1/2 kýrverð. Hafði strákur sett lönguhaus á prik við Ánanaust og gapti á haf út. Sýsluvöld í Vík (Reykjavík) hafði Jón Oddsson Hjaltdalín, sá fyrsti með því eftirnafni og ritaði með d. Kemur hann og sem yfivald að typpismáli séra Þórðar Jónssonar í Reykjadal árið 1730.

Fyrstur til að magna gerningaveður var Þór, er hann blés úr skoltum sér svo skeggbroddarnir stóðu beint út í loftið svo sem sjá má á teiknimyndum. Þvílíku var trúað langt fram eftir 19. öld. Eftir munnmælum og manni sem lést 71 árs 1869 skráir Jón Árnason í þjóðsögum: ,,,,Veðurgapi" var hafður til þess að gera ofviðri að mönnum sem voru á sjó og drekkja þeim...galdramaður tók upprifið lönguhöfuð ...og lét það snúa í þá átt sem hann ætlaðist til að veðrið kæmi úr”.

Um þetta og Illuga strák ritar Árni Óla í Reykjavík fyrri tíma, bls. 309-318. Einnig nánar í Grúsk, bls. 102-104.(1670, 1671, 1884).

Egill Skalla-Grímsson setti hrosshaus á níðstöng þá sem hann reisti Eiríiki blóðöx í Herðlu á Hörðalandi og hét á landvætti að reka þau Gunnhildi drottningu úr Noregi sem og varð fyrir tilverknað Hákonar bróður Eiríks. Og tveimur öldum síðar voru álög Egils enn að verki að Herðlu þegar Hákon gamli sigldi þaðan í hinsta leiðangur með flota sinn til Skotlands 1263.

Sem oftar komst Bauka-Jón Vigfússon betur frá líkri ákæru 1671 sjá þar.

FréttVísir (opnast í nýjum flipa)

Vefursnerpa.is (opnast í nýjum flipa)

Myndir

← 1728Magnús Ara á ,,fleygi"-ferð1730 →Klukkan Friðriki fjórða glymur