Sýslumaður og soldát par
Lag Tíu litlir negrastrákar
Lag Reið ég Grána yfir ána
Sýslumaður og soldát parsér neitt gáfu um andannen báðir urðu biskuparog börðust svo við Fjandann.
Postillur og predikanirprestum þurftu' að geraþví misjafnlega munu vanirog margir slakir vera.
Of seint mun nú úr að skera- annar tuggði, hinn drakk vín -hvort kunni að sama brunni beraBauka-Jón og Vídalín.
Heimildir og samhengi
Hólabiskup, Bauka-Jón Vigfússon, var sýslumaður í Borgarfirði þar til honum var vikið 1672 vegna tóbaks(sölu)mála.
Jón Vídalín var óbreyttur soldát í her Danakonungs áður en varð biskup. Predikanasafnið Jóns, Vídalínspostilla, prentuð 1718.
Um hana og mögulegan hlut Bauka-Jóns, tengdaföður höfundarins, sjá ritgerð Jóns Þ. Þór við 1678.
Arne Möller ritaði bókina ,,Jón Vídalín og hans Postil" sem út kom í Óðinsvéum 1929. Þar fjallar hann frá bls. 304 um fyrirmyndir sem Jón Vídalín hefur haft frá enskri bók, ,,The holy duty of man", sem hann líka þýddi úr dönsku og var gefin út á Hólum meira en 30 árum eftir dauða hans: ,,Skyllda Mannsens vid Gud, Sialfann sig og Naaungann". Frá bls. 313 rekur Arne Möller dæmi sem eiga að sýna hvert orðfæri Jóns Vídalín í Postillunni er sótt.
Þegar Magnús Stephensen var einvaldur orðinn um prentað mál á Íslandi kom hann í veg fyrir að postillan yrði endurprentuð, en hann fylgdi annarri stefnu í guðfræði. Honum til skapraunar tóku íslenskir stúdentar í Kaupmannahöfn sig þá til og létu prenta hana þar 1827-8.