Forlistið stóra þeim varð þarft
Lag Mangi raular, músin tístir - Bj.Þ. 903
Forlistið stóra þeim varð þarftsem þágu úr Gautaborgfjölgunar þótti verða vartog víða heyrast org.
Heimildir og samhengi
Viðauki Fitjaannáls II, 397: ,,...stríðsskipið hraktist upp á Þorlákshafnarvík þann 4. Novembris af skelfilegum útsynningi. Vörpuðu þeir þar strengjum og hröktust svo þar alla nóttina.
Þann 5. Novembris hjuggu þeir af sér mösturin og útköstuðu efstu stykkjum í sjóinn. Síðan hjuggu þeir atkerisstrengina og drifu svo upp á Þorlákshafnarskeið. Komust allir lífs af, 170 manns, fyrir utan 8 menn, sem höfðu farið út á einn fleka.
Þessu fólki niðurskipt um veturinn ...nokkrir guldu þjónustulaunin með óþægum barneignum.
En fyrir kost þeirra borgaði kongsins vegna landfógetinn”.
Skipið var af stærstu gerð, þrímastrað, sænskt, og höfðu Danir náð því af Svíum í Norðurlandaófriðnum mikla, sem lauk 1720, en hans vegna fylgdu stríðsskip kaupförunum til Íslands.
Á uppboði sem haldið var á viðum og gögnum úr skipinu gerðu sumir góð kaup í timburskortinum sem var hvað verstur í þessum rekalitla landshluta.
Sverrir Kristjánsson: Horfin tíð, Bóndinn á Eyri, 106: ,,Stranduppboðin voru ævintýri og draumur hins íslenska sveitamanns. Þarna rak á fjörur húsavið og járn til smíða, kopar og koníak, salt og skipsbrauð, erlendar vörur sem venjulega varð að sækja á klyfjahestum um langan veg yfir fjöll og ófærur, - þarna lá öll þessi dýrð í flæðarmálinu, föl hæstbjóðanda. Það var oftar en ekki að hinn naumi og aðsjáli íslenski bóndi ...bauð í hina sjóreknu vöru án þess að hirða um gjaldþol".
Jóhannes Birkiland, Harmsaga ævi minnar, bls. 42: ,,Aktíónir þóttu hátíðlegir viðburðir ... Buðu menn oft ákaflega hvor í kapp við annan ... og ofan í sjálfan sig. Eintómt fánýti seldist oft við ofurverði ... og boðið í alls konar rusl allt hvað af tók. ... Voru stundum margir um boðið samtímis að kalla".
Á fjórum blaðsíðum í 2. bindi Fjallkirkjunnar frá bls. 248 lýsir Gunnar Gunnarsson aðförunum við skipsstrand.
Auður djúpúðga braut skip sitt við komuna til Íslands 892, á sama eiði við Ölfusárós, þá nefnt Vikarskeið, nú oft Hafnarskeið, kennt við Þorlákshöfn.
Vikrarskeið nefnir Árni Óla skeiðið vestan Ölfusáróss á bls.160 í Grúski sínu.