Án þess nokkur örmum lyfti
Lag Mangi raular, músin tístir - Bj.Þ. 903
Án þess nokkur örmum lyftivið Árhraun Hvítá kyrrhún þar sínu rennsli riftisem Rauðahafið fyrr.
Hestfjalli undir ormur lá- ætla h´ann þyrfti ropa -því Hvítá-eystri enginn sáeftir að fékk sér sopa.
Heimildir og samhengi
Fitjaannáll: ,,...þornaði Hvítá hjá Árhrauni á Skeiðum nær í 2 daga hvað og skeði 1594.”
Hestsannáll segir: ,,Hvítá tapaði renslu sinni" svo að ,,þur varð hjá Árhrauni 1702"
2. Mósebók 21-22: ,,Þá rétti Móse hönd sína út yfir hafið ...Þá klofnaði hafið svo að Ísraelsmenn gátu gengið á þurru í gegnum það, en vatnið stóð eins og veggur þeim til hægri og vinstri handar".
Sama gerðist á milli nágrannabæjanna Árhrauns og Brúnastaða tvisvar á 19. öld segir í Tímanum 14. tbl. 5. apríl á annarri síðu 1924, þar sem fjallað er um öll fyrrnnefnd skipti sem Hvítá hvarf á þessum slóðum.
Þá átti þetta þó enn eftir að gerast hjá Brúnastöðum 1943.
Heimildarmaður: Guðni Ágústsson frá Brúnastöðum þann 23. apríl 2021.
Vitneskjuna hafði hann frá foreldrum sínum þar á bæ. Einnig að gömul kona í sveitinni, sem vissi um eldri tilvikin, rekti þau öll til þorstláts skrímslis sem bæli sitt ætti undir Hestsfjalli. Tímagreinin talar um að göng séu undir Hestfjalli.
Brúnastaðir, Hvítá, Hestfjall:
MyndMats Wibe Lund (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Hvítá séð frá Brúnastöðum í átt að Árhrauni:
Vefurveidistadir.is (opnast í nýjum flipa)
Að sögn Gísla biskups Oddssonar varð skrímslisins og vart í Hvítá við ferjustaðinn til Skálholts árið1600. Sjá þar.
Rauða hafið:
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Vefurarmstronginstitute.org (opnast í nýjum flipa)