Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 18. öld
  3. 1702
1702
1702

Asklok fyrir himin höfðu

Hljóðbrot0:00

Lag Mangi raular, músin tístir - Bj.Þ. 903

AAsklok fyrir himin höfðuhöfðingjar þessa landsaf þeim er Íslands sögu sögðusæmdir heiðurskrans.

Varðaði lítið Vídalínvorrar þjóðar magief þeir hefðu veizlu og vínværi allt í lagi.

(veizla: embætti)

Ísland drápu dróma úrdönsku ráðin klókger Pál við milding miður súrmanntal og jarðabók.

Heiðri umfram aðra sæmdir- opnar stóðu dyrekki voru til dauða dæmdirdándimennirnir.

Glúmur Gylfason · 1702

Heimildir og samhengi

Jón Aðils, um aldarfarið á fyrsta fjórðungi 18. aldar.
Ævisaga lm. Odds Sigurðssonar bls. 85-6: ,,...má svo að orði kveða að allt væri í uppnámi í landinu og hver höndin upp á móti annarri en slík tímabil eru einmitt hentugasta leiksviðið fyrir ofsa og yfirgang einstakra manna ...á bak við allan ófrið og baráttu höfðingjanna stóð ekkert æðra takmark, ekkert brennandi þjóðarmálefni, engin framfara eða menningarstefna ...þeirra takmark voru þeir sjálfir”.

Axel Kristinsson, Hnignun, bls. 56: ,,Pólitískar einingar þurfa sínar goðsagnir”.
Nöfn þeirra sem studdu Pál Vídalín í húnvetnsku hreppapólitíkinni (1701) gegn L. Gottrup bera nú kirkja í Hafnarfirði og háskólabygging í Reykjavík.
Íslandssaga Jónasar Jónssonar 1916: ,,Snorri veginn fyrir að vilja vernda frelsi og sjálfstæði þjóðar sinnar".

Samhljóða Jóni Aðils er lýsing sendimanns Eiríks kóngs af Pommern 1426, á höfðingjum Íslendinga á 15. öld, birt hér við 1708.

,,Hagur og heiður alþjóðar var ekki það sem skipti stjórnmálaflokkana máli” segir Halldór Stefánsson alþingismaður um þingstörfin á 3. til 5. áratug 20. aldar á bls. 14 í riti hans: Refskák stjórnmálaflokkanna, Rvk. 1943.

Gunnar Karlsson talar um þjóðernissinnaða sagnfræðinga á bls .66 í ,,Yfir Íslandsála", sbr. að
í ,,Frásögnum”, bls. 181, útg. 1955 lýsir Árni Óla aftöku þjófa á Þingvöllum, sem stálu mat í harðindunum 1702: ,,Íslendingar eru ekki þjófar að eðlisfari, en vegna þess að þjóðin hafði verið svipt öllu frelsi af einræðisstjórn, sem hugsaði um það eitt að hafa sem allra mest upp úr þegnunum var svo komið, að fólkið hrundi niður úr hungri... Þeir kvöddu sitt auma líf hangandi í gálgum á helgistað þjóðarinnar til merkis um þá óstjórn sem hafði komið Íslandi á kaldan klaka”. (Sjá 1701, 1702).
Þekkti Árni Óla þá hvortki Njálu né Hrafnkötlu?
Taldi hann að útlendingar væru valdir að hvarfi motursins frá Laugum? (Laxdæla).

Söguskoðun 1984:
Gísli Gunnarsson í ritgerð um Móðuharðindin, M&M 1984, bls. 238: ,,Ekki hefur borið mikið á umræðu um það hve rækilega fátækt fólk var fyrirlitið í gamla íslenska sveitasamfélaginu, en þessi fyrirlitning hindraði tvímælalaust varnaraðgerðir gegn hungurdauða. Það viðhorf var engan veginn óþekkt, að fátæklingar væru best geymdir dauðir". (Í tilvísun er Skúli fógeti undantekinn).

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Prófessor Guðmundur Jónsson um Gísla Gunnarsson látinn:
Gísli bendir á að í hallærum hafi valdamenn haft meiri áhyggjur af þjófum, flökkurum, lækkandi afgjöldum og skorti á vinnufólki en sveltandi alþýðu. Þeir skeyttu engu um neyð almúgafólks og álitu hungursneyðir heppilegar takmarkanir á fólksfjölda. Þegar líður á átjándu öldina hafi þó viðhorf ráðandi stétta tekið að mildast.

Í Íslandsklukku Halldórs Laxness segir Snæfríður við föður sinn, lögmanninn: ,,En hvað þetta er fallegt snæri ...það er svo oft sagt að Ísland vanti snæri. Hvern á að hengja?"
Eiríkur Jónsson leggur út, bls. 89 í Rótum Íslandsklukkunnar: ,,Snæri er hér tákn með tvennum formerkjum: lífsbjargar íslensku þjóðarinnar annarsvegar, dauðans hinsvegar. Snærin í gálganum eru tákn þeirrar nauðsynjar valdastéttar sögutímans (hengingarinnar), sem þeim var brýnni en afkoma Íslendinga". (Sbr. þeir sem fjallað er um 1701).
M.a. á bls 171 og 175 sýnir Eiríkur fram á að Arnas Arneus - sem í Íslandslukkunni er Árni Magnússon - er settur saman úr þeim Árna og Skúla fógeta. Úr verður óskabarn þjóðarinnar.

Vefursaga.sogufelag.is (opnast í nýjum flipa)

AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1702

  • Asklok fyrir himin höfðu
  • Án þess nokkur örmum lyfti
← 1702Asklok fyrir himin höfðu1702 →Án þess nokkur örmum lyfti