Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 17. öld
  3. 1646
1646
1646

Dæmdu Skotta húðlát hæst

Hljóðbrot0:00

Lag Mangi raular, músin tístir - Bj.Þ. 903

DDæmdu Skotta húðlát hæsthvergi móti voneikinni féll eplið næst:- Axlar-Bjarnar son.

Glúmur Gylfason · 1646

Heimildir og samhengi

Sveinn skotti handtekinn - margfaldur þjófur og nauðgari með meiru - sonur Axlar-Bjarnar, raðmorðingja frá Öxl í Breiðuvík á Snæfellsnesi, sem höggvinn var í parta og síðast af höfuðið 1596.
Þórdís kona Bjarnar var í vitorði um voðaverkin en á að hafa sloppið við dóm sökum þess að hún gekk þá með Svein – sjá og 1648. Afkomendur eru frá Axlar - Birni.

Seiluannáll I, 286: ,,Dæmdur undir hæsta húðlát á alþingi sá óráðvendnisstrákur, Sveinn Skotti, hafði það nafn af sífelldri rás og róli; illri breytni og djarffærni við kvenfólk en þó raunar ragur og duglaus; urðu þó ei betri afdrifin því litlu eptir refsinguna kom hann fram í Barðastrandarsýslu með sömu breytni og þaðan af verri; var hengdur þar og dó illum dauða”. Sjá 1648.

Skálholtsbiskup, Brynjólfur Sveinsson, sendi Svein-skotta bandingja til alþingis. Úr bréfi biskups til þingsins: ,,...hefur mestan sinn aldur alið í djöfulsins ríki og íþróttum ... með ókristilegum lifnaði í öllu stiptinu og jafnvel hinu ...hefur fjarlægzt vorum guði en samlagazt djöflinum og lifað sem einn holdlegur djöfull, snarað frá sér allri umhyggju sinnar sáluhjálpar og síns viðskilnaðar við þetta líf".
(Heimild Sverrir Kristjánsson, Horfin tíð, bls. 234).

Guðmundur J. Einarsson frá Brjánslæk segir á bls. 33 í Kalt er við kórbak, að á Siglunesi, vestasta bæ á Barðaströnd, hafi verið fornar sjóbúðir sem byggðar voru síðar upp sem fjárhús. ,,Það er í munnmælum að í einum búðarveggnum væri grafin hauskúpan af Sveini skotta. ... Sagt er að skrokkur hans hafi lengi hangið í snörunni eða þar til systir hans, Barbara, skar hann niður og lét sjóinn hirða. Rak svo hausinn á Siglunesi. Reimt þótti ávallt í búð þessari".

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1646

  • Afturgöngur enn eitt skarð
← 1645Af oss Danir reyndu raupa1646 →Afturgöngur enn eitt skarð