Prestar andans sveifla sverði
Lag Ætti eg hörpu
Prestar andans sveifla sverðiþess sverja eið í Vælugerðienginn hár þeim á höfði skerðisinn hæstiréttur sjálfir verði.
Heimildir og samhengi
Biskup skipaði í fyrri sið dóm, 6 eða 12 presta, sem fjallaði um brotlega presta og dómsmál sem prestur átti aðild að, og það gerðist í tilvikum eftir 1551, segir Björn K. Þórólfsson í Nordælu, bls. 40.
Reglan var eftir 1552 og til 1645 helmingadómur, sem var skipaður að jöfnu af biskupi og æðsta veraldlega umboðsmanni konungs sem tiltækur var og dæmdi í málum milli andlegrar stéttar og veraldlegrar.
Vælugerðisdómur: 3. júní 1645 boðar Brynjólfur Skálholtsbiskup 15 presta til fundar í Vælugerði - nú Þingdalur - í Villingaholtshreppi, og samþykkja að prestar yrðu í andlegum málum eingöngu háðir kirkjulegu valdi og skyldu sýslumenn þar enga hlutdeild eiga, en höfðu átt frá 1552. Ákvæði dómsins giltu þar til farið var að dæma eftir Norsku lögum á 18. öld. (Einar Laxness, Íslands saga III, 138).
Hér á Brynjólfur við mál sem varða presta eða kirkju innbyrðis, svo sem presta sem taldir eru brotlegir eða óhæfir í embætti.
Á þessu og næstu árum skrifuðu fleiri prestar undir Vælugerðisdómstilhögun Brynjólfs og urðu alls 52 í Skálholtsstifti.
Fyndi prestadómur prest sekan við landslög þá fyrst yrði hann afhentur veraldlegum dómi.
Í Hólastifti tók Gísli biskup Þorláksson að fara að þessum hætti um eða eftir 1657.
Áfrýja mátti dómum þessum til Hæstaréttar eftir að hann tók til starfa, 1661.
Fordæmið er Kristniréttur hinn nýi frá 1275 úr tíð Árna Skálholtsbiskups Þorlákssonar (Staða-Árna) en þá og síðan skyldu Guðslög gilda ef þau segðu annað en Jónsbók, sem lögtekin var 1281.
Hér hefur klerkdómurinn haft fyrir sér Pál postula, en í Fyrra bréfi Páls til Korintumanna, kafla 6, segir frá 1. versi: ,,Getur nokkur yðar sem hefur sök móti öðrum, fengið af sér að leggja málið undir dóm heiðinna manna, en ekki hinna heilögu?"
Myndfloahreppur.is (opnast í nýjum flipa)