Til þess sig knúinn Torfi fann
Lag Það á að strýkja strákaling - Bj.Þ. 902
Til þess sig knúinn Torfi fannað tjá sig um prestinn, nágrannann:,,Nú vígja þeir allan andskotannfari' einhver til Helvítis, þá er það hann".
Heimildir og samhengi
Brynjólfur biskup vígir Hallgrím Pétursson, þá bónda að Bolafæti, til prests að Hvalsnesi, en þar, að Stafnesi, ræður ríkjum fulltrúi fógeta, Torfi Erlendsson, og er enginn ættleri hvað skapsmuni snertir - 4. maður frá sm. Torfa í Klofa - og var faðir Þormóðs, þess vígfima sagnaritara (1671), en dóttur-dóttirin Þórdís Markúsdóttir, Stokkseyrar-Dísa, sór sig einnig í ættina hvað skapsmuni áhrærði, sbr.1671, 1729. og yfirlitsvísu 17. aldar við 1700.
Ekki þótti kunnátta og færni Þórdísar einleikin og fékk því á sig galdraorð. Sagnir af ,,kunnáttu" hennar eru í Þjóðsögum Jóns Árnasonar. Þær tók Óskar Halldórsson 1971 upp í bókina Galdrasögur og eru þar á bls.178 til 181.
Madama sr. Hallgríms var Guðríður Símonardóttir, sjá 1637.
Torfa Erlendssyni eru víða ætluð tilfærð orð 3. vísuorðs um vígslu Hallgríms, m.a. hér: AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)
Í 4. vísuorði er Torfa lagt í munn það heimilisfang þar sem hann í 3. vísuorði telur sr. Hallgrím skráðan, en hann,
Hallgrímur, var annarrar skoðunar:
,,Dýrðarkórónu dýra
Drottinn mér gefur þá
réttlætisskrúðann skíra
skal ég og líka fá
upprisudeginum á
hæstum heiðri tilreiddur
af heilögum englum leiddur
í sælu þeim sjálfum hjá."
Sjá sagnabrot Helga í Hólum útg. 2009 af Sunnlensku bókaútgáfunni.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
HeimildBækur.is (opnast í nýjum flipa)