Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 17. öld
  3. 1619
1619
1619

Fjáðir tíund frá sér vísa

Hljóðbrot0:00

Lag Ætti eg hörpu

Lag Nú er Gunna á nýju skónum

FFjáðir tíund frá sér vísafátækum sinna beri þvísa.Kaupmenn etja kóng og fýsaað kynni á Íslandi nýja prísa.

Asklok fyrir himin höfðuhöfðingjar þessa landsaldrei sig - en aðra kröfðuálna stigu dans

Glúmur Gylfason · 1619

Heimildir og samhengi

Hér á og við meginmálið sem fylgir hinni vísunni 1619.

Ekki sinnti lögrétta þá því boði konungs að jarðeigendur, en ekki leiguliðar, skyldu greiða jarðatíund.

,,Ástand Íslands um 1700", bls. 344:,,Árið 1619 kom út konungssbréf um að jarðeigendur en ekki leiguliðar skyldu greiða tíund af jörðum sínum. Þessu konungboði höfnuðu bændur reyndar á alþingi. ...Málið túlkar Páll Eggert Ólason sem tilraun konungsvaldsins ,,til þess að ganga á réttindi landsins".

Kóngur reyndi aftur 1629 og enn stóð lögrétta með jarðeigendum, þ.e., með sjálfri sér.
Kóngur greip í taumana og bannaði jarðeigendum að hækka leigur 1640, en þegar hann dó, 1648, ætluðu jarðeigendur að grípa tækifærið og hækka afgjöld á leiguliðum, en Friðrik III. sá við þeim 1650.

Í hörmungum fjárkláðans fyrri (1762) er bændum kunn þessi tilskipun kóngs frá 1619 og kæra 1770 fyrir Landsnefndinni fyrri að jarðeigendur láti leiguliða borga jarðatíundina. Athyglisvert er að sm. Pétur Þorsteinsson fullyrðir síðar - í athugasemd sinni við tillögur Landsnefndarinnar - að í N-Múlasýslu greiði eigendur ávallt jarðatíundina.
(Mellan kung och almuge bls. 141 og 157).

Auk tíundarinnar var algengt að jarðeigendur kúguðu leiguliða til að endurnýja (elli)dauð leigukú- og ærgildi og jafnvel að skila leigum (smjöri) af dauðum gripum, en að skilningi stjórnarinnar var það í andstöðu við lögbókina 1281, Jónsbók. Leiga af einni kú í eigu jarðeiganda var 2 fjórðungar smjörs á ári, þ.e., um 10 kg.
15. maí 1705 sendi kóngur tilskipun sem áréttaði Jónsbókarlögin og bannaði jarðeigendum að taka leigur af dauðum dýrum. Ekki mun hafa verið farið eftir þessu, t.d. Guðrún Eggertsdóttir á Saurbæ á Rauðasandi, sjá 1724.
Við Landsnefndina héldu þeir lm. Sveinn Sölvason og klh. Bjarni Halldórsson fram rétti jarðeigenda í þessu máli enda myndi landbúnaður ella leggjast af í landinu. Am. Ólafur Stefánsson andmælti þeim bréflega og sendi afrit til stjórnarinnar.
Tilvísun: Harald Gustafsson, Mellan kung och almuge, bls. 172 og frá 176.

Skv. Birni Lárussyni 1967 voru árið 1696 aðeins 6% bænda í sjálfsábúð, þ.e., áttu bújörð sína sjálfir. Kóngur átti 16,2% jarða, kirkjan 31,9%, í einkaeign 51,9%.

Síðasti íslenski aðalsmaðurinn, sm. Jón Magnússon (prúða), Haga, Barðaströnd, var með kóngi, Kristjáni IV. þennan vetur og varð ágengt við kaupsetningartaxtann, en ekki er þess getið að hann hafi í lögréttu beitt sér í skattamálum leiguliða.
Reglan erlendis var að aðalsmenn bæru ekki skatta en væru ábyrgir fyrir landvörnum og héldu lýðnum í skefjum hver í sínu umdæmi.
Lénsskipulagið er rakið til Karls mikla, keisara 800-814.
Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)

Áður en landið laut konungi höfðu lögréttumenn líka kunnað að sjá hag sínum borgið á kostnað almúga.
Þegar Viðeyjarklaustur var sett á stofn, 1226, ætlaði biskup því hlut af tekjum kirkna í nágrenninu. Þar sáu kirkjuhaldarar sig missa spón úr aski og tókst með hjálp lögréttu, þ.á m. lsm. Snorra Sturlusonar, að koma þess í stað nýjum skatti á bændur, ostatollinum.
(Heimild: Steinunn Kristjánsdóttir, Leitin að klaustrunum, bls. 328).

Myndir

Einnig frá árinu 1619

  • Í Brekkukoti baslaðist
← 1619Í Brekkukoti baslaðist1620 →Skulu sýslumenn sverja eiða