Í Brekkukoti baslaðist
Lag Þrútið var loft og þungur sjór
Í Brekkukoti baslaðistBjörn á sömu ferðþar mammon aldrei æxlaðistalltaf sama verð.
Heimildir og samhengi
Í Íslandslýsingunni Qualiscunque descriptio Islandiae frá síðari hluta 16. aldar (sjá 1595) segir að e-k verðstöðvun hafi ríkt um aldir á Íslandi. Skipt á einum hlut fyrir annan án tillits til árferðis, uppskeru eða aflabragða. ,,Ríkti þá hagfræði Björns í Brekkukoti" segir Gunnar Karlsson: Lífsbjörg Íslendinga, Verðlagningin, bls. 276-280, og á bls. 231 segir Gunnar: ,,verðlagsreglur lögbóka 1281, Jónsbók og Búalög ~1400, benda til þess að rétt hafi verið talið að verðlag væri stöðugt og stýrðist ekki af framboði og eftirspurn". Og í (Íslendinga)sögum komi fram ,,að fyrirlitlegt þætti að stunda viðskipti í ábataskyni". (Sbr. 1923).
Næturgreiða vildi Þórður skírari borga Birni í Brekkukoti með Biblíu sem kostaði hálfa hænu. Leiddi þá Björn til hans kú sína vel vitandi að það var hið upphaflega - og því rétta - verð Biblíunnar.
Þetta viðhorf kemur skýrt fram í frásögn Odds Oddssonar af viðskiptaháttum um 1855 og birt er hér við það ár, en lögmál kapítalismans byrja að virka á Íslandi eftir ~1870 skv. Jóni Guðnasyni bls. 15 í ,,Umbylting við Patreksfjörð".
Ártalið 1870leiðir hugann að Gránufjelaginu, sem náði því setta markmiði að hagnast EKKI á bændum eins og dönsku kaupmennirnir sem þekktu hvorki Íslendingasögur né Björn í Brekkukoti.
Halldór Laxness, Brekkukotsannáll, 3ji kapítuli: ,,rétt verð, til að mynda á rauðmaga, sé það verð sem kemur í veg fyrir að upp hrúgist hjá fiskimanni peníngar umfram það sem hann þarf til nauðsynja. ...þegar ört var framboð ...hvarflaði aldrei að afa mínum (Birni í Brekkukoti) að lækka sig heldur seldi hann afla sinn við sama verði og hann var vanur; þá var fiskurinn orðinn lángdýrastur hjá honum. ...flestir sem höfðu vanist á að kaup hjá honum fisk, ...þeir komu til að versla við hann einnig þá daga sem fiskurin var dýrari hjá honum en öðrum mönnum."
Arnór Sigurjónsson fjallar svo í Ásverjasögu, bls. 174, um þjóðfélagið um 1500, að það væri kyrrstætt og einangrað og markmið þess væri að vera kyrrstætt og einangrað.
Kristján IV. gerist þó verðlagsstjóri nú, þegar harðindi höfðu valdið uppskerubresti og þar af leiðandi verðhækkun á korni í Evrópu. Fór þá 3ja manna nefnd utan að kenna kóngi hagfræði Íslendinga og fór ekki algera erindisleysu. Fyrirliðinn, sm. Jón Magnússon eldri, er bar riddaratitil síðastur Íslendinga, sonur Magnúsar prúða Jónssonar og Ragnheiðar Eggertsdóttur Hannessonar riddara. Um tölulegan árangur má lesa í Sögu Íslendinga V, bls. 412.
Lík staða kom upp 1632, þegar kornverð hafði þrefaldast erlendis frá 1619. Fékk þá biskupsefnið, Gísli Oddsson, kóng til að hemja verðhækkanir til Íslands, sjá Sögu Íslendinga V, bls. 417.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
1684þoldu kaupmenn ekki lengur við. Voru þá þrír sýslumenn boðaðir utan til viðræðna um kaupsetningu, en fengu engu áorkað og versnuðu verslunarkjör þar til 1702, að Friðrik IV. kom í veg fyrir næstu erlendu verðhækkun fyrir stranga baráttu dansks amtmanns, Lauritzar Gottrup, við íslenskar þjóðhetjur.
Þar um ritar Jón Aðils, bls. 23 í Ævisögu Odds Sigurðssonar: ,,og svo voru sumir af landsmönnum eigingjarnir ...að þeir skárust úr leik þótt hér væri um velferð landsins að tefla”.
Stóð svo allt til 1776 nema hvað faktorar Hörmangara voru grunaðir um að fara ekki eftir skráðum taxta.
Í kaupsetningunni 1619 varð til tvenns konar verðlag: sauða- og fiskreikningur, vegna deilna bænda og kaupmanna um verð fyrir prjónles og aðra landvöru.
Það samkomulag var gert, sem hélst, að mjölverð var haft lágt gegn því að fiskur væri metinn langt undir söluverði erlendis. Öðrum hluta þess samkomulags var lengi haldið á loft hér á landi.
Dæmi taxtans 1619 í fiskum talið: Tunna mjaðar: 240 fiskar; pottur brennivíns 5; tunna hveitis 80; tunna salts 50; 10 feta eikarborð 9; hundað skipsaumar 24; Góðir kvenskór 20; almennilegir kvenskór 10; pálreka 10; 40 faðma lóðastrengur 10.
Ef greitt í landvöru, þá 8-10% dýrara.
Tilvísanir og heimildir:
Gísli Gunnarsson: Upp er boðið Ísaland, bls. 16 og 4. kafli.
Alþingisbók 1620, bls. 12.
Lúðvík Kristjánsson, Vestræna, 195
SkjalHáskóli Íslands (opnast í nýjum flipa)