Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 17. öld
  3. 1607
1607
1607

Endilangur laminn féll

Hljóðbrot0:00

Lag Fyrr var oft í Koti kátt

EEndilangur laminn félllandsins stærsti skógurolli þessu' á svipstund svellog svæsinn bylur nógurekki skorti eldivið- upp gekk rúm í hjöllum -brandar gætu bæst í liðbáls á Möðruvöllum.

Glúmur Gylfason · 1607

Heimildir og samhengi

Alþm. Einar Arnórsson birti eftirfarandi í blaðinu Suðurland 4. apríl 1914 og heimild hans eru jarðabókarhöfundarnir, Árni og Páll:

,,Veturinn 1607 féll stærsti skógur Íslands, Möðruvallaskógur, á einum degi. Bolirnir voru þykkir af ísingu og ofsaveður felldi þá síðan alla í einu. Þetta var náttúrufyrirbrigði, sem ekki var fyrirsjáanlegt og varð því ekki við ráðið. Árið 1914 er réttarstaða landsins í voða í gerningaveðri af mannavöldum. Hún getur hrunið á einum degi, eins og Möðruvallaskógur, ef ekki er að gert.
En við þessu er hægt að gera. Íslenskir kjósendur geta afstýrt þessum voða við kjörborðið 11. þ.m.".

Voðanum var afstýrt og Einar samdi ,,Fyrirvarann" við ríkisráðsákvæðið, sjá 1914 og 1918.

Stærstu brunar á Möðruvöllum: 1317, 1712, 1826, 1865, 1874, 1902, 1937.

AlfræðiWikipedia (opnast í nýjum flipa)

FréttVísir (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1607

  • Að Orminum skyldi enginn dást
← 1607Að Orminum skyldi enginn dást1608 →Á tvöföldu gengi talsvert græddist