Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 17. öld
  3. 1608
1608
1608

Á tvöföldu gengi talsvert græddist

Hljóðbrot0:00

ÁÁ tvöföldu gengi talsvert græddisttekjur drýgðust ,,sýsla”Hákon dó en Fúsi fæddistföður sínum Gísla.

Glúmur Gylfason · 1608

Heimildir og samhengi

Lögrétta ákveður e-k tvöfalda gengisskráningu landaura.
Þ.e., gjöld til konungs, sem sýslumenn tóku við í ríkisdölum voru á fjórðungs hærra gengi en ef greitt var í fríðu og liðu sýslumenn því launverslun við erlendar skipshafnir sem gaf af sér mynt sem endaði hjá þeim sem skattgjald.
,,sýsla”: sýslumanna.

LÍFTAUG LANDSINS, 219: ,,Peningar (mynt) voru í háu verði á Íslandi í samanburði við önnur lönd. Fyrir hvern hlut í landinu þurfti því að greiða fremur fáa peninga miðað við það sem gerðist erlendis. ...á þeirri (16.) öld féllu góðmálmar í verði.

Gíslungar eru nefndir afkomendur lm. Gísla (1583-1631) í Bræðratungu Hákonarsonar sm. í Klofa (d. 1608) Árnasonar sm. á Hlíðarenda sjá 1572; hér getið fæðingar Vigfúsar sm. Stórólfshvoli sama ár og afi hans deyr.
Vigfús varð faðir Bauka-Jóns, Hólabiskups, sýslumanns, tóbakssala og e.t.v. postilluhöfundar, sjá 1678. Öll eru nöfn þessara karla með feitu letri í sögu Íslands.
Vigfúsarnafnið, sem víða getur á þessum tíma, kemur frá sm. Vigfúsi (Fúsa) Þorsteinssyni brennisteinsfursta, sem auðgaðist á að selja kóngi réttinn til brennisteinsnámanna í landi Reykjahlíðar1563. Þorbjörg dóttir hans var kona fyrrnefnds Hákonar og móðir lm. Gísla í Bræðratungu en hans sonur var sm. Vigfús að Stórólfshvoli, faðir m.a. Bauka-Jóns. Þarna sést að börn eru látin heita eftir langöfum / langömmum séu afar / ömmur lífs. (1628, 1630, 1631, 1673, 1675, 1690). Heimild m.a. Íslenskar æviskrár Páls Eggerts Ólasonar.

Mynd af Stórólfshvoli: MyndFlickr (opnast í nýjum flipa)

Mynd Mats Wibe Lund af Klofa:
MyndMats Wibe Lund (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1608

  • Eingetinn sonur í Sæmundarhlíð
← 1607Endilangur laminn féll1608 →Eingetinn sonur í Sæmundarhlíð