Skydeforening og skoskur ljár
Lag Blessuð sólin elskar allt
Skydeforening og skoskur ljárog skulum á það giskaað Bjarni Sæmunds sé borinn í árog beri skyn á fiska.
Askinn fleytifylltu ríkfiskimið og heyinsvo gáfumenn úr Grindavíkgengu ei menntaveginn.
Bjarna lítt um mærðarmókmálið virti naskur:um lagardýr ef læri á bókað lyktum fyllist askur.
Heimildir og samhengi
Stofnað fyrsta íþróttafélagið, Reykjavig Skydeforening;
Torfi Bjarnason (1838-1915), kenndur við Ólafsdal, kynnir skoskan ljá sem hann mun hafa endurbætt og ekki þurfti að dengja við eld.
Næstu þrjá áratugina eftir að hann stofnaði bændaskóla í Ólafsdal, 1880, komu smám saman til sögu túnsléttur handverkfæri úr járni, skilvindur, hlöður með bárujárnsþaki, plógar og gaddavír.
Sbr. Kristleifur Þorsteinsson, Úr byggðum Borgarfjarðar II, 129.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Fæddist í Grindavík Bjarni Sæmundsson fiskifræðingur, d. 1940, stúdent 1889 og ,,hafði þá ekki síðan á dögum Tyrkjaránsins maður úr Grindavík gengið skólaveginn" (Um láð og lög, bls. 18.)
Bjarni glímdi við þá alþýðutrú að netalagnir fældu fiskigöngur sem valdið hafði hörðum átökum á milli inn- og útnesjamanna frá lagasetningu í þeim dúr 1877. (Saga Reykjavíkur, Bærinn vaknar, I, 92).
Bjarni var samviskusamur og heiðarlegur, lifði spart á vinnuferðum og skilaði Ríkissjóði til baka ef afgangs varð af dagpeningum. Í Afbrigðum og útúrdúrum, bls. 65-91, kemur fram hjá Kjartani Sveinssyni, að þessi meðferð fjár var ekki alls staðar jafn vel séð. Bjarni setti tappa í koníaksflösku þegar vínbannið gekk í gildi 1915 kl. 00.00 og tók hann úr aftur er því lauk - 20 árum síðar.
Hjá Kjartani kemur og fram, að Garðstyrkur íslenskra stúdenta í Höfn hafi gert betur en duga Bjarna til framfæris á námsárunum, en meirihluti þeirra sneri skuldum hlaðinn heim aftur og flestir próflausir.
Ritgerð Bjarna um fugla, segir Kjartan, var ekki metin hæf til doktorsprófs. Hvorki brást hann þá við eins og Reppur (sjá 1826) né Þorsteinn Gíslason (sjá 1901 og 1910), sem þá fór að berjast fyrir íslenskum Háskóla við litlar undirtektir lengi vel.
Lýsing fyrrnefnds Kjartans á viðhorfi latínugrárra fornmenntafræðinga Lærðaskólans til fiskifræði bendir til að þeir hafi fremur átt á dauða sínum von en að Kaupmannahafnarháskóli kysi að auka hróður sinn á 450 ára afmæli sínu, 1929, með því að sæma Bjarna Sæmundsson doktorsnafnbót h.c., en sú varð raunin.
1970 var skipi Hafró gefið nafn hans. Alþingi veitt honum, 56 ára, full embættislaun ævilangt án vinnuskyldu, þ.e., kennslu við MR, - vel vitandi hvernig varið yrði. Sneri hann sér þá alfarið að rannsóknum.
Guðmundur Magnússon segir í ,,Thorsararnir". bls. 82: ,,Þá hafi Thor /(Jensen) kostað fiskirannsóknir dr. Bjarna Sæmundssonar, sem var brautryðjendastarf á því sviði hér á landi".
Að stórútgerðarmaður styrki fiskirannsóknir kemur minna á óvart en örlæti Thors í ótöldum öðrum tilvikum. En forvitnilegt er hvort tengsl séu á milli þess og þeirrar ákvörðunar Alþingis að leysa Bjarna undan kennsluskyldu.
Dr. Árni Friðriksson fullyrðir að enginn eigi meiri hlut að þróun og þrifum Náttúrugripasafnsins en Bjarni Sæmundsson.
Kennslubækur Bjarna í landa- og náttúrufræðum voru kenndar lungann úr 20. öldinni. Sjá 1887.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Heimildir og tilvísanir:
https://is.wikipedia.org/wiki/Bjarni_S%C3%A6mundsson
Faðir minn, Anna Bjarnadóttir, Rvk. 1950;
Um láð og lög, Rvk. 1943; Einar Laxness, Íslands saga I, 127.