Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 19. öld
  3. 1867
1867
1867

Bændur höfðu ofsett á

Hljóðbrot0:00

Lag Augun mín og augun þín

BBændur höfðu ofsett áeins og fyrri daginnen dýrin kunna tregt það tjá:tómur sé þeim maginn.

Gömul saga sýndist nýþótt söm ei gerðust virðin:sitt líf lögðu sölurnar ísauðirnir fyrir hirðinn.

Glúmur Gylfason · 1867

Heimildir og samhengi

Torfi K. Stefánsson Hjaltalín, Eldur á Möðruvöllum, 588, úrdr:
Harðindi, fjárfellir og heyleysi nyrðra í apríl 1867.
Fundur í ágúst, sem Tryggvi Gunnarsson, þá bóndi í Fnjóskadal, stýrði, sá ekki ástæðu til ráðstafana.
Am. Pétur Havsteen sendi þá sýslumönnum harðort bréf, þeir skyldu hóta sektum að viðlagðri hýðingu, þeim er ekki virtu ásetningseftirlitið og vísaði til opins bréfs stjórnvalda frá 1862, um illa meðferð á skepnum.

Miklar væntingar voru þá með Þingeyingum um sauðasölu til Breta að undirlagi Tryggva. Hjarðir voru reknar til Húsavíkur, en sauðaflutningaskipið sýndi sig ekki og urðu þá skornar vegna yfirvofandi hungurdauða eða féllu úr hor: 165 kýr, 8.113 ær, 10.556 sauðir og 594 hestar.
E.t.v. þess vegna gerðist Tryggvi síðar mikill dýravinur; gaf út ritið Dýravininn frá 1885 uns stofnað var Dýraverndunarfélag Íslands 1914 og hann kosinn formaður. Félaginu ánafnaði hann mest allar eigur sínar eftir sinn dag.

Í Ævidögum, bls. 21, segir Jón H. Þorbergsson að skoðunarmenn hafi talið bændur birga, sem gátu gefið kúm til fardaga en fé fram á sumarmál, það lifði af ef til jarðar náðist.

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Eldur á Möðruvöllum: ,,Verslunarfrelsið sem komst á 1855 hleypti gróðaglýju í augu manna og gerði það að verkum að þeir sáu ekkert annað en von um skjótfenginn gróða. Hér var um að ræða upphaf innlendrar auðhyggju".

Skv. Nýrri Íslandssögu Björns Þorsteinssonar hefur ofásetningur tíðkast hér allt frá tíð Hrafna-Flóka.

Fyrirrennari am. Péturs í embættinu, Bjarni Thorarensen, hafði reynt að koma á eftirliti með ásetningi við litlar undirtektir en meiri óvinsældir.
Séra Árni Helgason hermir í ,,Biskupinn í Görðum", bls. 156, að veturinn 1835-36 hafi fallið í Norðuramtinu 1.065 kýr, 15.000 ær og 1.800 hross og ekki þótt mikið.

Þorbjörn Björnsson frá Gönguskörðum, bóndi Geitaskarði, segir 1954 í Skyggnst um af heimahlaði, bls. 86: ,,...meinsemdin sem þjáir okkar íslensku bændastétt er hið óskaplega tómlæti ...í fóðurbirgða og ásetningsmálum".

Myndir

Einnig frá árinu 1867

  • Skydeforening og skoskur ljár
  • Er Ameríkanarnir Alaska kaupa
← 1866Fótajárn í fangavist1867 →Skydeforening og skoskur ljár