Að Kolviðarhóli hús á grjóti
Lag Voða bágt á veslings Rútur/ Jólasv. 1 og 8
Að Kolviðarhóli hús á grjótiHellis- fyrir vestan skarðDanir telja til á mótiTívolí, nýjan skemmtigarð.
Heimildir og samhengi
Sæmundur Steindórsson (1782-1844), bóndi Auðsholti í Ölfusi, séra Páll Matthiesen (1811-1880) í Arnarbæli í sömu sveit, og mágur hans, Jón Jónsson (1789-1859), bóndi á Elliðavatni, gangast fyrir fjársöfnun til skýlisgerðar við Kolviðarhól og lauk byggingunni 1844.
Myndin sýnir timburhús á steinhlöðnum grunni.
Í Eimreiðinni 1928 og endurbirt í Sögnum og þjóðháttum, bls. 57, Ísfoldarprsm. 1941, lýsir Oddur Oddsson húsinu svo - og kemur illa heim við myndina:
,,Hús þetta var kofi, byggður úr torfi og grjóti, og þakinn torfi. Loft var í honum og á því nokkur flet.
Niðri var húsið óskipt ætlað hestum.
Naumast var hús þetta annað en nafnið. Á loftinu var allt skemmt sem hægt var að skemma ...útskorið og krassað með skammaryrðum og klámi, en niðri aldrei hreinsað".
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Vefurvisitcopenhagen.com (opnast í nýjum flipa)