Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 19. öld
  3. 1842
1842
1842

Felix um Þjórsá í frostinu óð

Hljóðbrot0:00

Lag Dvel ég í draumahöll

FFelix um Þjórsá í frostinu óðfrækinn á Nautavaðien Johnsen á Ármóti strauminn ei stóðstór þótti héraðs skaðie- kvað ei væri -drú þá dódauðastund enginn kýs sér.Laugar- í dælum hans líkami' í róliggur næst Bobby Fischer.

Glúmur Gylfason · 1842

Heimildir og samhengi

Hannes Þorsteinsson (1860-1935), ritstjóri og ættfræðingur segir í sjálfsævisögu að bróðir föðurafa síns, Felix Ásbjarnarson (1801-1859), hafi 16 ára á gamlárskvöld í miklu frosti vaðið Þjórsá á Nautavaði og komið allur gaddaður að Þjórsárholti. (1817).

Jón Jónsson lfr. Ármóti í Flóa, f. 1779, drukknaði þegar sundreið Þjórsá 1842. Hann hafði átt þátt í að leysa Kambránsmálið 1827.
Jón á Ármóti var sonur Jóns (1740-1788), sm. Móeiðarhvoli, Jónssonar, og k.h. Sigríðar (d. 1824), Þorsteinsdóttur, fyrsta ísl. lögfræðingsins, (sjá 1738), Magnússonar. Móðurafi Þorsteins var Bauka-Jón Hólabiskup, d. 1690.
Jón lögfræðingur á Ármóti var bróðir Valgerðar biskupafrúar (sjá 1856), en móðurafi signor Jóns (1835-1912) útgerðar- og atgervismanns í Þorlákshöfn, Árnasonar forlíkunarmanns, Ármóti, en föðurafi Jóns ritara landshöfðingja, sérstaks kláðalögreglustjóra, sjá 1878.
Heimildir: Saga Þorlákshafnar I, eftir Skúla Helgason, bls. 254 og Íslenskar æviskrár, P. E. Ól.

Robert (Bobby) Fischer heimsmeistari í skák 1972 liggur grafinn í Laugardælakirkjugarði - aðeins gangvegur á milli þeirra Jóns.

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Myndir

← 1841Bjarni og Tómas gerast grannar1843 →Að Kolviðarhóli hús á grjóti