Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 19. öld
  3. 1845
1845
1845

Skáldin deyja alltaf ein

Hljóðbrot0:00

Lag Senn er komið sólarlag - Bj.Þ. 865

SSkáldin deyja alltaf einog eru talin slóðará leiðið fá svo stóran steinog stað í sögu þjóðar.

Glúmur Gylfason · 1845

Heimildir og samhengi

+ Jónas Hallgrímsson, skáld, f. 1807. (Sjá 1946).
Ferðalok, - ort til Þóru Gunnarsdóttur:
FréttRÚV (opnast í nýjum flipa)

Tilvísun: Indriði Einarsson, Menn og listir, bls. 16:
Í júnílok 1828 ferðaðist Jónas, 20 ára Bessastaðaskólapiltur, til Eyjafjarðar samferða sr. Gunnari Gunnarssyni sem fór til brauðs síns, Laufáss ásamt 16 ára dóttur sinni, Þóru.

Indriði :
,,Jónas bað Þóru hjá föður hennar, en hann var á móti ráðahagnum".
1829 er Jónas skrifari hjá landfógeta í Reykjavík. Hann felldi, líklega veturinn 1830-31, hug til 16 - 17 vetra stúlku, Kristjönu Knudsen, sem vildi ekki taka tilbeiðslu hans. Utanför Jónasar dróst af þessum sökum til 1832. ,,Jónas fór ekki til Hafnar fyrr en öll sund voru lokuð". Í október giftist Kristjana Edvard Tomsen kaupmanni. ,,Ef til vill hefur það verið ævinnar þyngsta raun, að hann náði ekki ástum Kristjönu Knudsen. ...Ástin gerði hann að skáldi. Eftir 1830 unni Jónas aldrei neinni konu nema Kristjönu Knudsen og hennar vegna bar hann harm í hljóði".

Kristjana og maður hennar fluttust til Hafnar og voru oft þar samtíða Jónasi. Indriði nefnir tvö tilvik þar sem Jónas sá Kristjönu og varð mikið um í bæði skiptin.
Í síðara sinnið fór hann beint heim og orti kvæðið: ,,Man ég þig mey". Tilfærir Indriði einnig aðrar ljóðlínur sem eigi við Kristjönu: ,,Lifðu sæl við glaum og glys / gangi þér allt í haginn". Og: ,,Mér er þetta mátulegt, / mátti vel til haga, / hefði ég betur hana þekkt, / sem harma ég alla daga".

Begga gamla í Fjallkirkju Gunnars Gunnarssonar, I, 52: ,,Skáld verða menn ekki nema þeir séu það ...og þakkaðu þínum sæla. Þetta eru öðru jöfnu ólánsgrey og sjálfs sín vesalingar, stúlkurnar vilja ekki við þeim líta, þá leggjast þeir í óreglu, drekka frá sér ráð og rænu, deyja ungir og láta eftir sig stuðlaða kveinstafi og annað ekki."

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1845

  • Skálds á bak og burt er lík
← 1844Prentverkið fær nú latínuletur1845 →Skálds á bak og burt er lík