Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 19. öld
  3. 1845
1845
1845

Skálds á bak og burt er lík

Hljóðbrot0:00

Lag Þrútið var loft og þungur sjór

SSkálds á bak og burt er líkblánar ennþá lyngþótt reist sé upp í Reykjavíkráðgefandi þing.

Við Öxnadal Guð eigi sparógnarstuði var íopnaði sín augu þarÍslands Stradivari.

Skáldin deyja alltaf einog eru talin slóðará leiðið fá svo stóran steinog stað í sögu þjóðar.

Glúmur Gylfason · 1845

Heimildir og samhengi

+ 26. maí Jónas Hallgrímsson, listaskáldið góða, f. 16. nóv. 1807. Hann var einn Fjölnismanna, en þeir vildu endurreisa Alþing á Þingvöllum, þar sem ,,lyngið á Lögbergi helga blánar af berjum hvert ár, börnum og hröfnum að leik" allt síðan1798 a. m.k., sjá þar og einnig1869 þær viðtökur sem þingið nýja fékk t.d. hjá þeim sem áttu að greiða kostnaðinn.
Erfitt reyndist að finna jarðneskar leifar skáldsins öld síðar, þegar það skyldi grafið upp úr Assistentskirkjugarði í Kaupmannahöfn og flutt til Íslands 1946. Sjá þar.

Sjálfsævisaga Jakobs Hálfdanarsonar, bls. 90: ,,Þegar alþing hið nýja kom fyrst saman 1845, höfðu nokkrir af landsmönnum þá hugsjón um viðskiptaþörf sína að óska eftir að konungur lofaði fleiri þjóðum en Dönum einum að skipta við landsbúa, en ekki varð það þó í fyrstu einu sinni helmingur þingmanna sem gaf atkvæði sitt með þessu nýmæli. Svona var mönnum orðið okið inndælt og byrðin létt".

Þingmenn mega hafa haft fiskbrestinn mikla, 1686 til 1703, í huga, þegar bændur höfðu ekki handa kaupmönnum það sem þeir sóttust eftir sem borgun fyrir erlenda vörur og verslun var nú ekki enn orðin frjáls í Evrópu.
Verslunarfrelsi tók gildi í Leipzig 1862 og 1869 í Norður-Þýskalandi (Norddeutschen Bund), skv. Der Spiegel, Geschichte, 4/2018, bls. 89).

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Vefurkonurogstjornmal.is (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1845

  • Skáldin deyja alltaf ein
← 1845Skáldin deyja alltaf ein1846 →Breiðfjörð fær eigi betur ort