Loksins fær af biskup brauð
Lag Syngur lóa' í laufgum mó - Bj.Þ. 869
Loksins fær af biskup brauðsá bein er hlaut að nagaklerkur fyrr er kaffi bauðkóngi hundadaga.
Heimildir og samhengi
Steingrímur biskup Jónsson visiteraði Skagafjörð. Hitti hann þá að máli fv. kapellán til Mælifells, sr. Eirík Bjarnason (1766-1843), en bónda í Djúpadal síðan 1811. Tók biskup hann í sátt og fékk hann í kjölfarið veitingu, sextugur, fyrir Staðarbakka í Miðfirði 31.12.
Sr. Eiríki hafði orðið það á að þiggja veitingu fyrir Mælifelli af Jörundi hundadagakonungi sem greiða á móti greiða, þ.e., veitti Jörundi kaffi (með sykri?) þegar Jörundur vildi hafa við hann hestaskipti á Hafgrímsstöðum í Skagafirði.
Fékk þá sr. Eiríkur hvorki Mælifell né neitt annað brauð þessi 17 ár. Kaffi var bæði munaður og nýnæmi í þann tíð. (1810).
Íslæv. I;Sögur frá Skagf.II,136.
Um miðja 19. öld var kaffi orðið algengur drykkur hjá alþýðu manna.
(Heimsins hnoss, bls. 80).