Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 19. öld
  3. 1827
1827
1827

Karlarnir gerast Þuru þý

Hljóðbrot0:00

Lag Rís upp mín sál að nýju nú

Lag Kross á negldur - SSB 114

KKarlarnir gerast Þuru þýþegar gefur að róaog hún á stóran þátt í þvíað Kambránsmenn eru komnir íkóngsins járn í Flóa.

Að kona gengi í karlmannsreyfikonungs þurfti fyrrum leyfier Þuríður formaður formlegt fékken Elín Hirzt ei um það hirtiAlþingishefðir lítilsvirtiforsetanum fram af gekk.

Þuríður formaður frækin á sjófiskin sú aflaklóKambránsmenn létt út af laginu slóer Ludwig van Beehoven dó.

Glúmur Gylfason · 1827

Heimildir og samhengi

Þuríður Einarsdóttir (1777-1863), byrjaði að róa 11 ára og var lengi formaður á áttæringi frá Stokkseyri og hafði sýslumannsleyfi til að ganga í buxum.
Hún kallaði háseta sína ætið þannig til róðurs: ,,Skinnklæðum okkur í Jesú nafni". Heimild: Sigurður Þorsteinsson: Úr endurminningum Jóns á Hlíðarenda, bls. 13.
Sýslumaður frá 1822 var Þórður Sveinbjörnsson (1786-1856), síðar dómstjóri við Yfirréttinn. (1800, 1886).

Í Sögu, 2023, bls. 228, segir Karen Oslund, að með þeim vana sínum að klæðast karlmannsfötum hafi Þuríður ,,öðlast meiri viðurkenningu í samfélaginu á 19. öld en aðrar konur gerðu á þeirri tuttugustu. Þó hún ætti öfluga óvini og upplifði mismunun alla ævi voru einnig margir menn sem báru virðingu fyrir færni hennar á sjó og landi og vildu ólmir sigla undir hennar stjórn eða ráða hana til annarra starfa, eins og á því tímabili þegar hún vann fyrir kaupmenn í Hafnarfirði".

Sigurður Gottsvinsson (1798-1834) var foringinn er þeir bræðurnir Jón (f. 1801) og Hafliði (1795-1846) Kolbeinssynir ásamt honum rændu á Kambi í Gaulverjabæjarhreppi 9. febrúar.
Þorleifur (1799-1882) bróðir þeirra, þá 27 ára og ekki orðinn ,,hinn ríki á Háeyri" vildi ekki með. Sagðist síðar hafa tekið eftir að þjófar yrðu aldrei ríkir, hættu að vinna, en biðu næsta tækifæris, og svo gengi þetta í ættir.
Bók Ingu Láru Baldvinsdóttur, ,,Margur í sandinn hér markaði slóð", bls. 30, segir frá því að Kambránsmaðurinn Haflið Kolbeinsson hafi haft með sér kartöflupoka þegar hann kom úr fangavistinni í Kaupmannahöfn 1844 og sett niður í sandbakkann við Háeyri. Á kartöflurækt hafi þó ekki orðið framhald fyrr en eftir 1870.

Vefurmannlif.is (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Höfundur sögunnar af Þuríði formanni og Kambsránsmönnum er Brynjúlfur Jónsson frá Minna-Núpi.
Önnur heimild: Tómas Guðmundsson, Horfin tíð, bls. 200.

Oddur Oddsson, Sagnir og þjóðhættir, útg. 1941, bls. 22: ,,Formaður var jafnan mikilsvirtur af skipshöfn sinni, og laut hver maður boði hans og banni, enda var hann næstum einvaldur yfir skipverjum, og að lögum meira en nokkur húsbóndi á heimili. Hásetar vissu vel að hann hafði margoft líf þeirra í hendi sér og undir honum var mest komið hversu aflaðist". (Lýsing á útræði um 1880).

Þriðjudaginn 2. júlí 2013 gerði forseti Alþingis þm. Elínu Hirzt að víkja úr ræðustól uns hefði haft fataskipti. Hún var mætt til þings í bláum gallabuxum. Sbr:
Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)

Skjalvefir.mms.is (opnast í nýjum flipa)

Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)

Ludwig van Beethoven dó, fæddur 1770.

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Myndir

← 1826Loksins fær af biskup brauð1828 →Á hvalfjöru illa á sér sat h'ann