Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 19. öld
  3. 1822
1822
1822

Lærða-Jóni var lögmál óður

Hljóðbrot0:00

Lag Enginn þarf að óttast síður

LLærða-Jóni var lögmál óðurLútherstrúarmaður góðurHelvíti um hafsjór fróðurHimnaríki´í óx hans sjóður.

Séra Jón var Siggu góðursystrum þremur og einum bróðurorðspor sitt um annt og hróðurá ei félli blettur, ljóður.

Sigga er þyngdist þyngdist róðurþar af gerðist prestur móðuróbornum lét eftir fóðurenn er fyllir kjaftaskjóður.

Glúmur Gylfason · 1822

Heimildir og samhengi


Sigríður (1790-1864), dóttir sr. Jóns lærða Jónssonar, (1759-1846), þá á Möðrufelli, Eyjafirði, eignaðist barn með vinnumanni föður síns.
Prestur lét hana, síðasta ógiftra mæðra, standa opinbera aflausn sem varð ennþá sögulegri fyrir það, að sýslumannsfrúin, Gunnlaugs Briem á Grund, Valgerður Árnadóttir, sem átti mesta virðingarsæti kvenna, innst norðanmegin í Grundarkirkju, settist nú hjá syndaselnum á krókbekk aftast.
Krókbekkinn skyldi Sigríður aðeins sitja að þessu sinni, en Valgerður sat þar þau 50 ár sem hún átti ólifuð. Sýnist þá amma Tryggva Gunnarssonar, langamma Hannesar Hafstein, hafa haft aðra sýn en kirkjunnar menn þess tíma á hver væri stéttaskipting í Himnaríki.
Kirkjan var fjölsótt og hefur þessi atburður ekki gleymst í 200 ár, en skyggt t.d. á kristilega smábókaútgáfu sr. Jóns: 80 hefti útgefin og prentuð erlendis 1816-1854 sem boðuðu heittrúarstefnu (píetisma) andstætt upplýsingu Magnúsar Stephensen, sem einn réði því hvað prentað var á Íslandi þegar hér var komið og næstu 10 árin.
Heimildir m.a. Vilhjálmur Þ. Gíslason: Blöð & blaðamenn bls. 50; AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)

Saga frá Skagfirðingum II, 110: ,,Jón Espólín reið norður í Maio og Hákon (1801-1885), son hans, er þá hafði lokið skólaveru. Þeir komu til Möðrufells hinn 25ta í mánuðinum en hinn 30ta var boð inni á Möðrufelli, og gekk Hákon að eiga Sigríði dóttur Jóns prests".

Sauðlauksdalsannáll VI, 473: ,,Þessar forordningar dateraðar 8da Junii 1767; kom eigi inn fyrr en með Thodal (1770) að opinberar aflausnir fyrir legorð skuli afteknar vera".

Kristleifur Þorsteinsson: Úr Byggðum Borgarfjarðar, 324:
,,Í krókbekkjum, fremst (utast) í kirkju átti fólk það að sitja, sem að dómi prestsins átti enga verðleika skilið".

Hólmfríður Hjaltason, skrásett af Elínborgu Lárusdóttur, Tvennir tímar, bls. 47: ,,...á krókbekk sátu hrossakjötsætur”.

Saga Akureyrar I, Jóns Hjaltasonar, bls. 37, sýnir þessa mynd af sr. Jóni ungum:
Á öðrum áratug eftir að kaupmönnum var 1776 bannað að afgreiða menn í einrúmi, tók faktor Lynges á Akureyri upp á því að hleypa einum í einu inn í búðina.
,,Hópur bænda hímdi utandyra í kulda eins og útigangsskepnur þangað til að bar sr. Jón, þá kapellán föður síns í Grundarþingum. Hann bað þá bændur fylgja sér vel eftir, hljóp að plægðri hurðinni, sem var úr þykkum borðum, setti í hana öxlina og tókst að brjóta tvær miðfjalirnar. Þustu bændurnir inn á eftir honum”.

Tilvísun: Matteus 6. 20, sbr. sjóður óx á himni.

Heittrúarstefna, píetismi, olli trúarbyltingu í evrópu, og byrjaði með þýskum nokkru eftir 30ára stríðið (1618-1648).
Páll Eggert Ólason, Saga Íslendinga V, 248: ,,Það má þykja vafasamt að hræring sú sem barst hingað með Harboe á 18. öld hafi nokkurn tíma að ráði fest rætur með Íslendingum eða rofið að nokkru stefnu rétttrúnaðarins".
Ekki var blekið Páls þornað þegar heittrúarhreyfingar bárust hingað, t.d. frá Ameríku, sem andsvar við nýguðfræðinni. (1742).

Myndir

Einnig frá árinu 1822

  • Fengið hafði sá vondi völd
  • Áður húð- við stólpa strýkt
← 1822Fengið hafði sá vondi völd1822 →Áður húð- við stólpa strýkt