Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 19. öld
  3. 1817
1817
1817

Bakkus einatt alls til vís

Hljóðbrot0:00

Lag Syngur lóa í laufgum mó - Bj.Þ. 869

BBakkus einatt alls til vísekki bregður vanaá Svínavatni um veikan ísverður presti að bana.

Um Auðkýlinginn innti Geirog arman héraðsbrestinnen Húnvetningar harma meirhrossið vakra en prestinn.

Glúmur Gylfason · 1817

Heimildir og samhengi

Rósberg G. Snædal, Hrakfallabálkur bls. 104: 4. febr.
,,Séra Jón Jónsson prestur á Auðkúlu drukknaði af hesti niður um ís á Svínavatni undan ósum Svínadalsár. ...var nokkuð kenndur orðinn er hann ...týndist í blindvök við vesturlandið og fannst eigi lík hans fyrr en um vorið.
Kvæntur var hann Ingibjörgu dóttur séra Odds á Miklabæ Gíslasonar, þess er hvarf 1. okt. 1786.
Urðu tveir synir þeirra prestar, sem báðir drukknuðu".
Sjá enn fremur þáttinn á bls. 14: ,,Heimur á við hálft Kálfsskinn" í ,,Vér Íslands börn" eftir Jón Helgason og ,,Jón í vatninu" í Þjóðsögum Jóns Árnasonar.

Nýtt Kirkjublað 15. nóvember 1912, úrdráttur:
Geir biskup var gamansamur og lét allt fjúka. Hann skrifaði kunningja sínum, Grími, síðar amtmanni, að hann hefði nýskeð misst 3 presta sína voveiflega. ... Jón Jónsson á Auðkúlu hleypti niður um ís á Svínavatni. Gat Geir þess að Norðlendingur hefið fyrstur orðið til að segja sér frá og hefði bætt því við: ,,Var eftrsjá að hestinum því að hann var (eins og hann nú kvað), ólukki vakur". 

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Vefurpt-pt.facebook.com (opnast í nýjum flipa)

Vefurnutiminn.is (opnast í nýjum flipa)

Vefurpt-pt.facebook.com (opnast í nýjum flipa)

Myndir

← 1816Glöggt var eyra gestsins þá1818 →Að Frón stefni fram á við