Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 19. öld
  3. 1816
1816
1816

Glöggt var eyra gestsins þá

Hljóðbrot0:00

Lag Seht, die gute Zeit ist nahe - EGB 18

GGlöggt var eyra gestsins þáglapti landann vaninn*,,þú komst þegar Fróni reið allra mest á”**,,;/; eini góði Daninn ;/;”

Glúmur Gylfason · 1816

Heimildir og samhengi

Christian Rasmus Rask (1787-1832), málfræðingur, hafði ferðast um landið frá 1813 til 1815. Honum blöskraði ástand íslenskrar tungu, vakti Íslendinga til meðvitundar um gildi hennar og gekkst fyrir að stofnað var í Kaupmannahöfn Hið íslenska bókmenntafélag 1816, sem enn starfar á Íslandi og gefur út ritið Skírni.
Vefurth-th.facebook.com (opnast í nýjum flipa)
Grímur Thorkelín segir í skýrslu til konungs 1811 að málið (íslenskan) sé ,,smátt og smátt að spillast, svo að hin ,,svokallaða íslenska" muni innan skammrar stundar út af deyja". (Jón Sigurðsson: Hið ísl. bókmenntafél., 15). Aðalgeir Kristjánsson telur líklegt að Rask hafi lesið þetta þá.

* er orðrétt tilvitnun í níðkvæði um Dani eftir dönskukennara Iðnskólans í Rvk., Þorstein Erlingsson (1858-1914) Fyrri eiginkona Þorsteins var dönsk.
** orðrétt tilvitnun í barnakennara við Melaskóla í kennslustund með Páli, föður Stefáns sagnfræðings, sem er heimildarmaður. Verið getur að kennarinn vitni þarna háðskur í kvæði Þorsteins Erlingssonar er hann segir: ,,Í dag ætlum við, börnin góð, að læra um eina góða Danann”. Þó er jafn líklegt að svo sé ekki, sbr. erindi dr. Láru Magnúsardóttur við HÍ 2/12 2014: ,,...á þeim árum var ætlast til að sagnfræðingar og kennarar tækju þátt í sjálfstæðisbaráttunni með því að tala illa um Dani”.

Í Íslenskum sagnaþáttum Bókaútgáfunnar Hildur 1982 segir á bls. 64, að Jörundur hundadagakonungur sé líklega sá eini danski maður sem vildi Íslendingum vel á þeim tíma. Rask var samtímamaður Jörundar svo að Hildur fjölgar góðum Dönum um 100% - úr einum í tvo.

Sínum augum lítur hver á silfrið. Elínborg Lárusdóttir: Merkar konur, Iðunn 1954, bls. 150: ,,Jörundur kom til Skagafjarðar og sýndi þar sem víðar yfirgang og ofríki. Urðu menn nauðugir viljugir að lúta boði hans og banni. Setti hann suma frá embætti, (Finn Magnússon, þá málflytjanda við Yfirréttinn, síðar prófessor) en skipaði aðra í þeirra stað. Fór hann með fjölmennu liði yfir héraðið og líkaði flestum stórlega illa, en fengu ekki aðgert. ...Þess voru mörg dæmi að andstæðinga sína léki Jörundur grátt".
Fækkar þá aftur í flokki góðra Dana?

Og fækkar enn? Aðalgeir Kristjánsson, Nú heilsa þér á Hafnarslóð, bls. 196: ,,Raskdeilan. ...kann að vera að Íslendingar hafi séð ofsjónum yfir þeim vegtyllum og nafnbótum sem féllu honum (Rask/Rafni) í skaut". Síðan segir AK frá ritdómi sem birtist í des. 1830, um þýðingu úr fornnorrænu sem Rafn hafði gert. ,,Dómurinn var harðorður og auðsjáanlega gerður í þeim tilgangi að koma höggi á Rafn (,,okkar hólma mesta velgjörara" (ásamt Rask) segir sr. Árni Helgason í bréfi til Rasks, sjá 1818). Aðfinnslurnar voru smásmugulegar og sumar rangar en innrætið sem að baki bjó leyndi sér ekki. Aldrei hefur verið upplýst hver höfundurinn var ...Hitt þótti augljóst, að íslenskur maður hefði verið eigi allfjarri þegar dómurinn var saminn og bárust böndin að Þorgeiri Guðmundssyni og Þorsteini Helgasyni. Rask vildi halda hlífiskildi yfir Rafni. ...Hann tók því saman ritkorn ... og sýndi fram á rangfærslur og villur gagnrýnandans. ...Árás Rasks á Þorgeir og Þorstein skildu menn svo að hann hefði ætlað þeim ...að eiga hlut í ritdómnum. ...Baldvin (Einarsson) varð svo reiður að hann gat hvorki sofið né lesið og skrifaði svar á þremur dögum". Hann dó af afleiðingum brunasára sem hann haut í des. 1832, en Rask dó 14. nóv. það ár úr tæringu; ´,,úr ergelsi" segir sr. Tómas Sæmundsson. Sannað þykir að Þorsteinn Helgason hafi hvergi komið nærri enda löngu farinn til Íslands þegar ritdómurinn birtist.
Sjá enn fremur bók Nönnu Ólafsdóttur, Baldvin Einarsson. (Sjá 1809).

Benedikt Gröndal, Ný sumargjöf 1860: ,,Hann (Rask) hefur ef til vill verið mestur allra málfræðinga því hann kunni fimmtíu og fimm mál og kunni þau öll betur en flestir aðrir ...og málfræðin á honum meira að þakka en nokkrum öðrum, þeim er á vorri öld hefur uppi verið. ...Mállaus þjóð getur eigi verið til, því málið er einn af þeim hlutum sem skilja menn frá skepnum; því fullkomnara sem málið er, því mikilhæfari er hugsun þjóðarinnar. ...Íslendingar hafa eigi gleymt Rask. ...Hann er einn þeirra sem vakið hafa tungu vora til afls og blóma. ...Hann var sá sem skildi það að tungurnar eru óaðgreinanlega sameinaðar sögu þjóðanna, og því stendur rirtað á minnisvarða hans á íslenskri tungu. ,,Ef þú vilt fullkominn vera í þekkingu, þá lær þú allar tungur, en gleym þó eigi að heldur þinni tungu". (Sjá og um félagsskap 1815).

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Vefurpantheon.world (opnast í nýjum flipa)

AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)

AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)

Vefurhib.is (opnast í nýjum flipa)

AlfræðiVísindavefurinn (opnast í nýjum flipa)

Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)

Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)

Myndir

← 1815Útsendur hingað engill var1817 →Bakkus einatt alls til vís