Eiríkur fékk ekki brauð
Lag Vatnsdælingastemma
Eiríkur fékk ekki brauðeinhver réð hann klagaklerkinn sem að kaffi bauðkóngi hundadaga.
Heimildir og samhengi
Kapellán til Mælifells, sr. Eiríkur Bjarnason (1766-1843) á Hafgrímsstöðum, hafði veitt J. Jörgensen nýnæmið kaffi og fékk þá loforð hans fyrir kallinu þegar í stað og án þess að bíða andláts sr. Bjarna Jónssonar (1733-1809).
Ekki fékk Eiríkur Mælifell. Hann átti reyndar vildisjörð austan Vatna, Djúpadal, og gerðist góðbóndi þar og sótti að öllum líkindum ekki um brauð fyrr en sonur hans, þá biskupsritari, gekkst í því að hann fengi Staðarbakka, þá orðinn 62ja ára 1826, sjá þar.
Djúpdæla Stefáns Jónssonar, 82: ,,Eiríkur mun hafa þjónað Mælifelli til vordaga 1810. Ámæltu sumir honum mjög fyrir viðskipti hans við Jörgensen. ...Eigi sótti Eiríkur um Mælifell og var það veitt sr. Jóni Konráðssyni 1810". (Reyndar í skiptum við sr. Jón Jónsson á Auðbrekku, föður Guðnýjar á Klömbrum, sjá 1836).
Sm. Jón Espólín orti:
Ef Eiríkur minn álpast hingað prestur
ekki skal hann verða kaffigestur
bera skal honum brennivín
svo betur þvaðri málin sín.
(Saga frá Skagfirðingum II, 64, 89)
Varla hefur verið spurt að því þarna hvort menn vildu sykur í kaffið. Um 100 árum síðar segir Jón H. Þorbergsson í Æviminningum, bls. 40, að sykur hafi fengist út í kaffið á sunnudögum á fjárræktarbúi í Noregi.
Um miðja 19. öld var kaffi orðið algengur drykkur hjá alþýðu manna.
(Heimsins hnoss, bls. 80).
Um þessi mál prestanna, Bjarna og Eiríks, við Jörund, fjallar séra Ágúst Sigurðsson ítarlegar í Fornum frægðarsetrum, I. bindi, frá bls. 223.
VefurFacebook (opnast í nýjum flipa)
VefurFacebook (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)