Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 20. öld
  3. 1948
1948
1948

Um hvort þiggja Marshall má

Hljóðbrot0:00

Lag Syngur lóa í laufgum mó - Bj.Þ. 869

UUm hvort þiggja Marshall mámenn á báðum áttumkommúnistum nú og þánæsta þótti fátt um.

Glúmur Gylfason · 1948

Heimildir og samhengi

Jónas Ragnarsson, Dagar Íslands, 13. júlí: ,,Undirritaður var samningur um nær 39 milljón dala aðstoð Bandaríkjanna við Ísland, svonefnda Marshallaðstoð".

Einar Laxness, Íslands saga II, 150: ,,...af 38,65 milljónum dollara voru 29,8 milljónir dollara gjafafé
... Um þátttöku Íslendinga í Marshallaðstoð urðu miklar deilur hérlendis, þar sem Sósíalistaflokkur barðist harðast á móti
...6 austurevrópuríki, sem boðið hafði verið, höfnuðu þátttöku”.
Það var eftir að Stalín hafði kallað foringja Tékkóslóvakíu og Póllands til Moskvu og veitt þeim tiltal fyrir að sýna þessari hjálp áhuga – segir
AlfræðiWikipedia (opnast í nýjum flipa)

og tekur dæmi um til hvers hjálpin fór: ,,byggingar
SogsvirkjunarWikipedia (opnast í nýjum flipa), LaxárvirkjunarWikipedia (opnast í nýjum flipa), áburðarverksmiðju í GufunesiWikipedia (opnast í nýjum flipa),
steypuverksmiðju, hraðfrystihúsa og klæðaverksmiðju
ÁlafossWikipedia (opnast í nýjum flipa) svo fátt eitt sé nefnt”.

Vefurfaxafloahafnir.is (opnast í nýjum flipa)

Vefurnl.usembassy.gov (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1948

  • Um ,,Tímann og vatnið”
← 1948Um ,,Tímann og vatnið”1949 →Löngum hefir þessi þjóð