Um ,,Tímann og vatnið”
Lag Ó, fögur er vor fósturjörð
Um ,,Tímann og vatnið”tekist áTryggvaskáli í kafi.Héðinn banalegu lá.Lúðvík Norðdal afiþótt Banka, þjóð og Blaði hjábarnið þjónað hafiýmsir vilja h'ann ekki sjáen aðrir falla í stafi.
Heimildir og samhengi
Steinn Steinarr - Aðalsteinn Kristmundsson (1933, 1934), birti ljóðin ,,Tíminn og vatnið" og "fékk á sig hatramma árás í Þjóðviljanum" segir Jón Óskar á bls. 21 í Kynslóð kalda stríðsins.
Steinn var kallaður kommúnisti, en þeir fengu línuna frá Stalín, sem kunni ekki að meta nýungar í listum frekar en landinn: ,,Ýmsir urðu fjarska hneykslaðir á ljóðum Steins, en ég hef aldrei skilið almennilega hvers vegna. Í flestum kvæðum hans er stuðlasetning og rím", segir ekkja hans, Ásthildur Björnsdóttir í viðtali sem sést hér:
Vefurherdubreid.is (opnast í nýjum flipa)
Magnús Á. Árnason, Gamanþættir, 136: ,,Það (Tíminn og vatnið) er svo hnitmiðað ... að lesandinn verður sjálfur að leggja talsvert til ef hann á að geta notið þess".
Guðjón Friðriksson, Saga Reykjavíkur, Bærinn vaknar II, 384: ,,Steinn túlkaði kenndir öreiganna í ljóðum sínum, þeirra sem urðu undir og skynjaði fjandsamlegt umhverfi í höfuðstaðnum".
Ölfusá flæddi hátt yfir bakka sína við Selfoss.
+ Héðinn f. 1892 Valdimarsson (sjá 1932, 1935, 1938).
,, ...tæki Héðinn að sér verk að vinna setti hann himin og jörð á hreyfingu til að koma því í framkvæmd". (Jón Baldvinsson). ,,Hylli Héðins meðal fátæks verkafólks í bænum og forysta hans svo afgerandi að er með fádæmum". (Guðmundur J. Guðmundsson - jakinn).
Gils Guðmundsson segir - eftir að hafa rakið kosti Héðins: ,,Skortur á samvinnuþýðleik mun hafa valdið miklu um það að hann varð aldrei sá leiðtogi sem hæfileikar gáfu að öðru leyti tilefni til".
Lúðvík Norðdal Davíðsson (1895-1955), læknir á Selfossi, varð afi þegar dóttir hans, Ingibjörg Kristín (1922-2016), eignaðist soninn Davíð, sem átti Odd lækni (1914-1977) Ólafsson að föður.
Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)