Stúlka fékk nú stúdentsmennt.
Lag Ríður fríður riddarinn - Bj.Þ. 900
Stúlka fékk nú stúdentsmennt.Stefni skips til Grimsby vent.Vífilsstaðir, Vísisprentvikum sjávar og álnum hent.
Vikur sumars og vetrar fyrrað vita þótti skyldaenginn lengur um slíkt spyrönnur lögmörk gilda.
Heimildir og samhengi
Annar íslenski kvenstúdentinn, Laufey (1890-1945) Valdimarsdóttir Ásmundssonar og Bríetar Bjarnhéðinsdóttur.
Sjá Minningar úr Menntaskóla 1946, bls. 243.
Mynd af Laufey, slóð: Myndstatic.wixstatic.com (opnast í nýjum flipa)
Kjartan Sveinsson, Afbrigði og útúrdúrar, bls. 169: ,,Hún (Laufey) endaði ævi sína á ferðalagi og þótt frekar hljótt færi er það almennt álit manna að í París hafi hún fallið fyrir morðingjahendi".
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Ólöf Nordal: Úr blöðum Laufeyjar Valdimarsdóttur: ,,Eldri piltar tóku þessari nýbreytni ágætlega, ...en jafnaldrar hennar, sem voru á erfiðasta aldri, gátu ekki látið það alveg afskiptalaust að hafa orðið fyrstir til þess að fá ,,stelpu" inn í sitt hefðbundna ríki. Laufeyju var mikið strítt í skólanum, og þó að henni sárnaði oft, sgði hún sjálf: ,,Þetta er nokkuð að kenna uppeldi og óvana að sjá kvenfólk vinna karlmanna vinnu"".
1897 tók Elínborg Jacobsen (1871-1929) stúdentspróf utan skóla frá Lærða skóla. Hún var því fyrsta konan sem lauk stúdentsprófi á Íslandi. Foreldrar hennar, Anna Kristín María og Joen Jacobsen, skósmiður, fluttu um 1870 frá Færeyjum til Reykjavíkur, þar sem Elínborg fæddist og Joen stundaði iðn sína. Ekki var konum þá enn leyft að sitja í latínuskóla hérlendis enda tæp öld þar til konum yrði heimil prestsvígsla, sem þá var helsta bókvitið sem í ask yrði látið. Elínborg sat fjögur ár í læknadeild Kaupmannahafnarháskóla, hætti þá námi og gerðist nuddlæknir - sjúkraþjálfari?
AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)
1901 hafði Björg C. Þorláksson (1874-1934) tekið stúdentspróf í Kaupmannahöfn eftir að hafa verið vísað frá Lærða skólanum í Reykjavík vegna kynferðis. Hún lauk síðan öllum háskólagráðum erlendis.
Stóru árhundraði síðar er mikill meirihluti háskólastúdenta stelpur en strákarnir sitja undir bílsýri. Þar af leiðir þetta:
Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)
Breskur landhelgisbrjótur óhlýðnast sm. Barðastrandar, Guðmundi Björnssyni (1873-1953) og siglir til Skotlands með hann og Snæbjörn Kristjánsson (1854-1938), hreppstjóra í Hergilsey.
,,Ferð til fortíðar" eftir Ólaf Ásgeir Steinþórsson og
,,Á stjórnpallinum" saga Eiríks skipherra Kristóferssonar, þar segir frá því á bls. 35, að Íslendingur hafi verið um borð í enska togaranum og kemur ekki á óvart né að hann gaf sig ekki fram við landa sína, sjá 1889;
Vefurgrimsbytelegraph.co.uk (opnast í nýjum flipa)
Oddfellowar - nú íslenskir - (1898), koma á fót heilsuhæli fyrir berklaveika á Vífilsstöðum.
AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Der Spiegel Geschichte 4/2019 rekur berklafaraldur 19. aldar til iðnbyltingarinnar. Þá fjölgaði í þéttbýli þar sem búið var við heilsuspillandi húsnæði í kolaryki og menguðu verksmiðjulofti.
Kristleifur Þorsteinsson segir í Byggðum Borgarfjarðar II, 323, að fullyrt sé að Tómas Sæmundsson (1807-1841) Fjölnismaður, hafi borið berklaveikina í sér sunnan frá Frakklandi;
Dagblaðið Vísir byrjar göngu sína;
Fyrsta blaðið kom út 14. des. og hét VÍSIR til dagblaðs.
HeimildTímarit.is (opnast í nýjum flipa)
Eigandi og ritstjóri var Einar Gunnarsson kaupmaður, sonarsonur Einars Ásmundssonar í Nesi, sjá 1860, 1870, 1883.
Vísir kom út sem síðdegisblað til 25. nóvember 1981 þegar það sameinaðist öðru síðdegisblaði, Dagblaðinu, og hét eftir það Dablaðiði Vísir, DV.
Metrakerfið tekur gildi.
AlfræðiVísindavefurinn (opnast í nýjum flipa)
Vika sjávar: einnar klukkustundar róður eða um 7,5 km en gat farið upp í 9 km. Tíminn sem róið var uns skipt var um ræðara.
Gildi eldra lengdarmáls eru jafnvel enn í notkun hjá trésmiðum og sjómönnum, dæmi: ,,tommustokkur", míla.
Í manntalinu 1910 voru fæðingardagar manna skráðir í mánaðardögum .
Áður, og lengur, vissi fólk fæðingu sína í vikudögum og tölusettum vikum sumars og vetrar.
Á bls. 121 í ,,Stiklað á stóru" eftir Gunnar Benediktsson segir að árið 1920 hafi prestsverk enn verið reiknuð í álnlum: Skírn 3 álnir, líksöngur 6 álnir, ferming 12 álnir.
Frá 18. öld voru 2 fjórðungar (~10kg) smjörs reiknaðir sem 20 álnir (vaðmáls). Höfðu fyrr verið 12 álnir.