Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 20. öld
  3. 1909
1909
1909

Fyrir kóngi Björn sig bukkar

Hljóðbrot0:00

Lag Tryggða fækkar taugunum - Bj.Þ. 870

FFyrir kóngi Björn sig bukkarbeygir djúpt og hneigirLands- þá bankaráðið rukkarreigir sig og teygir.

Glúmur Gylfason · 1909

Heimildir og samhengi

Ráðherraskipti 31/3:
Blaðamenn biðu spenntir fyrsta fundar konungs og nýja forsætisráðherrans, Björns Jónssonar (1846 - 1912) sem í ræðu og riti hafði tjáð sig sem róttækur þjóðernissinni. Engin sáust þess nú merki – nema síður væri.
Björn var þrotinn að kröftum þegar í ráðherrastól kom og kennir Hannes Þorsteinsson ráðgjöfum hans um ,,Landsbankafarganið”, er Björn vék gæslustjórum Landsbankans, séra Eiríki Briem og Kristjáni Jónssyni frá Gautlöndum, (1911) og bankastjóranum, Tryggva Gunnarssyni.

Heimastjórnarflokksmaðurinn Tryggvi Gunnarsson var og stjórnarformaður Íshúsfjelagsins við Kalkofnsveg (1894) og rákust hagsmunir þess á við SS, en stjórnarformaður þess var Sjálfstæðisflokksmaðurinn (gamla), Ágúst Helgason í Birtingaholti, sem þurfti að sækja rekstrarfé Sláturfélagsins til bankastjórans, Tryggva. Segir Ágúst í endurminningum, að mjög hafi skipt um til batnaðar fyrir Sláturfélagið eftir að Björnj rak Tryggva frá Landsbankanum.
Sjá og Guðjón Friðriksson, Samvinna á Suðurlandi, I, 215.

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

,,Sparkliðið” (Sjálfstæðisflokkur fyrri) taldi ,,Björn hafa sýnt undanhald og ístöðuleysi gagnvart útlenda valdinu”, en þingmenn Heimastjórnarflokksins studdu vantraustið vegna Landsbankamálsins.
Mælt að Tryggvi hafi dauður ekki viljað hvíla nálægt Birni og því gert garð alþingishússins, og þar er hann grafinn.

Um Sturlungaöld segir Vésteinn Ólason í Heimtur, bls. 349: ,,Ljóst virðist að á þessu tímabili líta íslenskir höfðingjar á bandalag við Noregskonung sem leik í endalausu valdatafli sínu á Íslandi”.
Hvað hafði breyst?
Aðrar heimildir og tilvísanir:

Í Fótsporum feðranna, bls. 271", segir höfundur, Þorsteinn Thorarensen, að æsingarnar í bankamálinu hafi yfirgengið allt sem áður hafði yfir dunið í símamálinu og uppkastinu. og á þar við orðbragð stjórnmálamanna. Andstæðingar Björns í Ísafold hafi t.d. fært sér taugabilun hans i nyt og sendu honum bréf með morðhótun. Úrdráttur: ,,Aðvörun til ráðherra Íslands, Björns Jónssonar: ef þér verðið ekki við þeirri áskorun að aukaþing verði haldið í næstkomandi febrúarmánuði verðið þér drepinn innan 9 nátta. Nokkrir".

Sjálfsævisaga Hannesar Þorsteinssonar. Rvk. 1960; Brautryðjandinn, Skálholtsútg., 192;
Einar Laxness: Íslands saga I, 146, 55, III, 51.
Minningargrein um Björn eftir Indriða Einarsson endurbirt í bók hans, Menn og listir, bls. 109.

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1909

  • Margir lengi vildu' ei veita
← 1909Margir lengi vildu' ei veita1910 →Stúlka fékk nú stúdentsmennt.