Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 19. öld
  3. 1829
1829
1829

Húnvetningum hættast fer

Hljóðbrot0:00

Lag Maðurinn sem úti er - Bj.Þ. 855

HHúnvetningum hættast ferá heiðarleikans svellisíðast hýddur Sveinki erSveinsson á Austurvelli.

Glúmur Gylfason · 1829

Heimildir og samhengi

Árni Óla, Gamla Reykjavík, 294, úrdráttur:
Sveinn Sveinsson, bróðir Bjarna á Strjúgsstöðum í Langadal, sem var ,,alræmdur og illa þokkaður" (sbr. 1832) - og tveir félagar hans - annar hafði dvalið 3 síðustu ár með fyrrnefndum Bjarna - sem uppvísir höfðu orðið að þjófnaði (96 dala virði), voru að úrskurði Ulstrups bæjarfógeta hýddir opinberlega á Austurvelli. Hýðinguna framdi böðull bæjarins, Guðmundur Hannesson, sem nefndur var fjósarauður.
Er þetta síðasta opinbera hýðing í Reykjavík.

Enn var þó hýtt annars staðar, t.d. Sölvi Helgason (1820-1895) dæmdur í Hæstarétti 1846 til að þola 27 vandarhögg.
Oddur Grímsson á Brókarlæk í Skagafirði hýddur 1843 fyrir 9undu framhjátekt.
Slíkt varð refsilaust í Danmörk 1785.

Opinberar hýðingar felldar úr lögum á Íslandi 1866 með nýjum hjúalögum, en enn heimilt húsbændum að hirta hjú með hendi og vendi til 1929, en þá voru líklega fá eða engin hjú lengur til að hirta. Sjá 1822.
Enn var þó hýtt fyrir luktum dyrum og kemur fram í ævisögu sr. Árna Þórarinssonar (1860-1948), að þegar hann var barn á Stóra-Hrauni, næsta bæ við sýslumanninn, Jón Guðmundsson á Litlahrauni, þá varð hann vitni að því að böðull og sýslumaður færðu dæmdan mann til hýðingar í kofa þar nálægt.

Páll Lýðsson, hreppstjóri og sagnfræðingur, fjallar um sunnlenskar hýðingar í Árnesingi Sögufélags Árnesinga, riti III, 9 og segir hýðingum með hrísvendi skyldi að konungsboði beitt að nýju frá 1816 ef sá brotlegi var ekki borgunarmaður fyrir sektargreiðslu. Þetta var eftir að úrræðum fækkaði með því að Múrnum var lokað 1813 og fangarnir sendir hver heim á sína sveit. Héldust hýðingar því við fram til 1874/5, þegar fangelsið, Steinninn, kom við Skólavörðustíg í Reykjavík.
Jón Ormsson hríshaldari - böðull - sýslumanns Þorsteins Jónssonar kanselliráðs á Kiðjabergi, hýðir Guðmund Björnsson 27 hrísvandarhöggum 14. september 1874. En 31. maí 1875 fellir Landsyfirdómur 15 högg með reyrpriki á Ingimund Sæmundsson. Páll Lýðsson nefnir dæmi þess að hríshaldari fái 1 ríkisdal fyrir rasss.

Guðmundur Daníelsson, Dómsdagur, bls. 199: ,,Ástir í meinum, blóðskömm og sifjaspell nutu alla tíð umburðarlyndis almennings, þjófurin uppskar fjandskap og lítilsvirðingu. Nema hann hæfist upp í að gerst útilegumaður og kæmist á handahlaupum upp á jökul undan þjónum réttvísinnar ...þá varð hann samstundis mikilmenni".

Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)

Skjalforseti.is (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1829

  • Í Friðriksgáfu getur flutt
  • Vestur á Hellnum var og einn
← 1828Á hvalfjöru illa á sér sat h'ann1829 →Í Friðriksgáfu getur flutt