Í Friðriksgáfu getur flutt
Í Friðriksgáfu getur fluttGrímur - amtmann köllumeinatt milli elda stutter á Möðruvöllum.
Heimildir og samhengi
Einar Laxness, Íslands saga I, 153: ,,Friðriksgáfa, bústaður amtmanns á Möðruvöllum í Hörgárdal fullbyggður 1829 í tíð Gríms Jónssonar, amtmanns norð-vesturamts, og kom í stað gömlu amtmannsstofunnar sem brunnið hafði 1826. Friðriksgáfa hlaut nafn sitt af því að Friðrik VI. Danakonungur gaf allmikið fé til byggingarinnar".
Næsti eldsvoði varð á Möðruvöllum 1865 er kirkjan brann og sýnir málverk Arngríms Gíslasonar þann bruna.
Friðriksgáfa brann 1874 og einn maður brann þá inni en nokkrir björguðust úr eldinum við illan leik.
Á grunni Friðriksgáfu var byggður Möðruvallaskóli, gagnfræðaskóli fyrir pilta auk einnar stúlku, stofnaður 1880 og brann 1902.
Um stúlkuna einu, Jórunni Jónsdóttur, má lesa í Gesti 5, Gils Guðmundssonar.
Enginn er gallalaus, en um Grím, og þar með galla hans, er fjallað 1824 og 1849.
Stærstu eldsvoðar á Möðruvöllum: 1317, 1712, 1826, 1865, 1874, 1902, 1937.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Friðriksgáfa var endurbyggð í nýja miðbænum á Selfossi 2022.