Reykjahlíð nú hraun burt þvær
Lag Fyrr var oft í Koti kátt
Reykjahlíð nú hraun burt þværHolmmæðgurnar brallaApploníu elska þærótakmarkað varla.Oddur Sigurðsson víst másig nú illa berahonum víkur Fuhrmann frá,,þótt fyrr hefði mátt vera".
Þorleif mega mæðgur skjalla- minna varð úr báli -Þar þó sýndist Hákoni hallaheldur réttu máli.
Heimildir og samhengi
Við 1695er gerð grein fyrir Oddi Sigurðssyni, ætt og uppruna m.m.
Reykjahlíð undir hraun í Mývatnseldum 1724-29 er voru sprungugos á Hverfjallsskeiði og hófust með sprengigosi er myndaði Víti, en síðar rann hraun frá Leirhnjúk niður í Mývatn milli Grímsstaða og Reykjahlíðar. Mývatns- og Kröflueldar eiga upptök í megineldstöð sem liggur milli Kröflu og Gæsafjalla.
(Heimild: Árni Einarsson – Hið íslenska náttúrufræðifélag).
Appolonia Swartskopf (1718) lést á Bessastöðum með grunsamlegum hætti. Am. Fuhrmann hafði áður ytra rift trúlofun við hana. Á hann var dæmd framfærsluskylda. Settist hún þá upp á Bessastöðum, en Fuhrmann tjaldaði úti á túni.
Á Bessastöðum störfuðu mæðgurnar Holm í þjónustu Fuhrmanns. ,,Hin yngri vildi eiga hann" segir Grímsstaðaannáll, bls. 562.
Appolonia taldi sér oft borinn eitraður matur og veikindi sín af þeim toga.
Sjávarborgarannáll, IV, 340: ,,Var í því máli yfirdómari tilskikkaður séra Þorleifur Arason á Breiðabólstað austur, sem og sýslumaðurinn Hákon Hannesson".
Hákon sagði sig frá er honum leist hinn ekki vilja ganga rétt til verks.
Þorleifur sýknaði Holmmæðgur. Við það sættu ættingjar Appoloníu sig ekki og sendu mann til Íslands, Paul Kinch, sem las Þorleifi hæstaréttarstefnu dauðum við gröf hans, en hann hafði drukknað í Markarfljóti 12. jan. 1727, en um það leyti kom P. Kinch til landsins segir Vigfús Guðmundsson, Breiðabólstaður, 56. (1718).
Skv. Alþýðublaðinu 9. tbl. 1938 hugðust Holmmæðgur fá galdramann til að sjá fyrir Appoloníu og hétu tilteknum manni 50 rd. fyrir, en Appolonía dó með innvortis kvölum 18. júní 1724.
Reimt hefur þótt á Bessastöðum síðan Appolonía dó.
VefurGoogle (opnast í nýjum flipa)
Guðmundur Daníelsson samdi skáldsöguna Hrafnhetta þar um.
Sjá; Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)