Höfðingjunum höndin laus,
Lag Veik er mundin opin undin - Bj.Þ. 915
Höfðingjunum höndin laus,á höfuðbóliekkert vissu í sinn hausá Ingjaldshóli.
Heimildir og samhengi
Við 1695er gerð grein fyrir Oddi Sigurðssyni, ætt og uppruna m.m.
Skv. sögu Odds Sigurðssonar eftir Jón Aðils:
Til þinghalds í kirkjunni á Ingjaldshóli 4.-5. nóv. mætti lm. Oddur Sigurðsson drukkinn og hleypti upp samkomunni. Las með blótsyrðum og dregnum korða stefnu yfir J. Gottrup og kom til ryskinga síðari daginn. Jóhann Gottrup hafði, síðan Oddi var vikið frá Stapaumboði og Snæfellsnessýslu 1721, haft með Ingjaldshól og kirkju að gera og byggt bónda nokkrum jörðina, en Oddur hafði þá fyrir skömmu húsað hana veglega upp og vildi ei víkja. Sendi hann menn til heyskapar að Ingjaldshóli er þá lenti saman við nýja bóndann, sem nú leitaði réttar síns hjá húsbónda sínum, sm. Jóhanni Gottrup.
Jón Aðils: Oddur Sigurðsson, bls.193-201:
,,6. nóv., daginn eptir að þinginu var slitið, reið Gottrup niður í Rif og tók hús á Oddi. Óð hann inn um allt með nakinn korða í hendi bölvandi og ragnandi og endaði með því að reka korðann í gegnum pilsin á einni af vinnukonunum. Lét hann þar sýnu verr en Oddur hafði nokkru sinni látið”.
Rif og Hellissandur fjær, Mats Vibe Lund: Vefurkayakklubburinn.is (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Bændablaðið 20. mars 2025, bls.54; Tómas Ragnarsson: ,,. ...þetta ku vera elsta steinsteypta kirkja heims, ...steypt 1903.
Í febrúar 1477 bar þar ... að garði Kristófer Kólumbus. ... sonur Kólubusar skrifaði sögu föður síns og fullyrðir að hingað (að Hellissandi?) hafi hann komið".