Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 20. öld
  3. 1939
1939
1939

Forlíkast gerðu fjendur þrír

Hljóðbrot0:00

Lag Fylgi þér, mágur, farsæld nú. (séra Sigvaldi Árnason á Stað)

FForlíkast gerðu fjendur þrírþó forn óvildin kraumiJónas er ennþá flammi og fýr- að flokkurinn þótt saumi -hann yfir hægra brosi býrog blindum valdadraumimeð Óla - í laumi -ef yxna sæjust Korpúlfskýrvel kann að halda á taumi.

Glúmur Gylfason · 1939

Heimildir og samhengi

Sbr. Guðjón Friðriksson, Ljónið, Hægra brosið: Jónas Jónsson, formaður Framsóknarflokksins enn utan þeirrar stjórnar sem Hermann Jónasson veitir forstöðu. Jónas gerði sér þá títt við erkióvininn, ,,Jenssoninn”, með því að hafa daglega símasamband við Ólaf Thors, son Thors Jensen, hvers allar eigur, m.a. Korpúlfsstaðir, voru á þessum tíma veðsettar Landsbankanum þar sem Jónas sat í stjórn.

Vegna heimsmála var í apríl mynduð stjórn þriggja flokka, A, B, D, undir forsæti Hermanns Jónassonar - án Jónasar - og nefnd þjóðstjórn, en nýstofnaður Sósíalistaflokkurinn, C, ekki talinn stjórntækur vegna sinnar byltingarsinnuðu fortíðar.

Sbr. Guðjón Friðriksson, Hægra brosið: Glettin Vísisgrein eftir ,,eina sendibréfsfæra blaðamann íhaldsins” (skv. Jónasi), Árna Jónsson frá Múla (1891-1947), um sinnaskipti Jónasar, vísaði til myndar af honum og líkti við dulúðugt bros Mona Lísu. Blöðin töldu að ,,hægra bros” Jónasar til Ólafs Thors, þ.e., Kveldúlfsmálið, stjórnarbylting í Síldarverksmiðjum Ríkisins á kostnað Alþýðuflokks, tillaga um þjóðstjórn og hraðskilnað við Dani, væri allt til þess gert að verða forsætisráðherra í stjórn með Sjálfstæðisflokknum.

Til er í Samtölum (Indriða G. Þ.), bls 56, skýring Jónasar á sáttaumleitunum hans við Ólaf Thors: ,,Ég ...kvaðst sem samvinnumaður fús að vinna ...með verkamönnum meðan þeir hlýddu lögum og landsrétti. En jafnskjótt og verkamenn gerðust byltingarsinnaðir og vildu breyta þjóðfélaginu með ofbeldi, kvaðst ég ...standa við hlið Óafs Thors".

Svo þegar Þjóðstjórnin var mynduð án hans, þá kom áætlun B (sbr. Gunnar Hall: Sjálfstæðisbarátta Íslendinga, bls. 59, 87 og 95):
Haustið 1939 umpólaðist Jónas gersamlega í greinaflokki í Tímanum - hafði enginn Danafjandi verið - og gerði þar þá kröfu, að íslenski fáninn yrði hreinsaður af þeim rauða danska lit.
Andstæðingar fundu þá ástæðu, að hann vildi verða fyrsti forseti lýðveldisins og trúðu forsrh. Dana, Th. Stauning, fyrir því í Íslandsdvöl hans í ág. 1939 og það með, ,,að það skyldi aldrei verða". Þetta birtist í B.T., 1. des. 1939.

Til þess að halda Jónasi í einangrun, yrði að taka af honum frumkvæðið í Danahatri og sókn til lýðveldis. Til þess var bara ein leið og hún var farin á næstu árum við litla hrifningu Dana, UK og USA og þeir síðasttöldu stöðvuðu það ,,brot á sambandslögunum" í þrjú ár.

Þegar stefndi í það 1942, að Sveinn Björnsson yrði á þingi kosinn fyrsti forseti Íslands, þá skrifaði Jónas grein um Svein í Tímann í byrjun desember það ár. Svo sem hér má sjá,
Vefurhandrit.is (opnast í nýjum flipa)
þá varð greinin til þess að upplag blaðsins var brennt.

Um Sturlungaöld segir Vésteinn Ólason í Heimtur, bls. 349: ,,Ljóst virðist að á þessu tímabili líta íslenskir höfðingjar á bandalag við Noregskonung sem leik í endalausu valdatafli sínu á Íslandi”.
Hvað hafði breyst?
(Sjá Jón Krabbe: Frá Hafnarstjórn til lýðveldis bls. 156).

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Halldór Laxness skrifar oft samtímaatburði inn í sögur sínar á 4. áratugnum. Þar á meðal þetta forsetatema oftar en einu sinni. Þar er Pétur Þríhross Pálsson í gervi Jónasar Jónssonar að því að talið er: Fegurð himinsisns, 12. kafli: ,,...þá rann það upp fyrir honum (Ólafi Kárasyni) að þetta mundu vera þjóðernis- og menningarbrækur frá Pétri Pálssyni ...tilvonandi forseta lýðveldisins". Þetta skrifar Halldór veturinn 1939 til 1940.

1942 eru slóðir á umfjöllun um Jónas Jónsson.

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Íslensk þjóðfélagsþróun 1880-1990, Gunnar Helgi Kristinsson, bls. 337: ,,Þrátt fyrir sigur Jónasar frá Hriflu í valdabaráttunni við meirihluta þingflokksins (sjá hér 1934 og 1935) ...náði hann aldrei fullum tökum á þingflokknum. Þingflokkurinn reyndist áfram vera megin valdamiðstöðin í flokknum, ...Út á við var hann óumdeildur foringi Framsóknarmanna, en innan ...þingflokksins var honum æ meir skákað í aukahlutverk ...þar til honum var á endanum ýtt úr formannsstólnum." Sjá 1944.

Myndir

Einnig frá árinu 1939

  • Þjóðverja fékk Adolf ært
← 1939Þjóðverja fékk Adolf ært1940 →Þar féll raki í þurra jörð