Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 20. öld
  3. 1928
1928
1928

Mörgu í framkvæmd gat Hrifla

Hljóðbrot0:00

Lag Ríður fríður riddarinn - Bj.Þ. 900

MMörgu í framkvæmd gat Hriflahrint/hann þó fengi ei við alla lynteinum hrint en öðrum brynntog íhaldið galt í sömu mynt.

Einar lét sig ekki falanembætti þótt tæki í mótRíkiseinkasíldarsalansósíalistum fjárhagsbót.

Glúmur Gylfason · 1928

Heimildir og samhengi

Jónas Jónsson frá Hriflu (1885-1968), þótti (of) athafnasamur í ríkisstjórn Tryggva Þórhallssonar (1889-1935) og aflaði sér bæði vina og óvina. Þess vegna (?) varð hann, flokksformaðurinn, ekki ráðherra aftur, - sjá 1935.
Harka var í stjórnmálaorðræðunni. Saga Íslands XI, sýnir dæmi 2. mars 1928 úr Verði: Árni frá Múla, ,,Eini sendibréfsfæri blaðamaður Íhaldsins” (orð Jónasar) skrifar:
,,Þessi flöktandi, stamandi, valdagráðugi snápur. Þetta sígapandi, gortandi endemi sem seilist löngum fingrum í hnútasvipuna”.

Í afmælisriti Gissurar Bergsteinssonar, bls. 20, segir ríkissaksóknari, Þórður Björnsson, að andstæðingar Jónasar telji hann misbeita valdi sínu og ofsækja pólitíska andstæðinga, en haldi hlífiskildi yfir brotlegum stuðningsmönnum sínum.

Einar Olgeirsson: Kraftaverk einnar kynslóðar, bls. 138: ,,Hann verðlaunaði þá sem voru honum eftirlátir, en lét svipuna dynja á hinum sem voru honum óþjálir". Jónas hafði sem ráðherra skipað Einar forstjóra Síldareinkasölu Íslands 1928 og vikið honum 1931, eftir að hann hafði stofnað Kommúnistaflokkinn ásamt fleirum. Sbr. vef Alþingis.

Þór Whitehead, Kommúnistahreyfingin á Íslandi, bls. 41: ,,Jónas fékk Einari framkvæmdastjórastöðu í Síldareinkasölu Íslands. Er það skjalfest, að vonir stóðu til þess að Einar tæki sinnaskiptum við það að setjast í forstjórastólinn. Hann brást þessum vonum Jónasar. Forstjórakaupið notaði hann meðal annars til þess að gefa út tímaritið Rétt".

Hermann Jónasson sagði í góðlátlegu samtali við Jónas á 4. eða 5. áratugnum: ,,Þú kannt að skrifa, en ekki að stjórna" og Bjarni Benediktsson: ,,Þín vinnubrögð í ríkisstjórninni verða jafnan öðrum til viðvörunar". Í ,,Samtöl við Jónas, bls. 52, segir hann bæði ummælin sýna að ,,ungum ofurhugum þykir að jafnaði lítið koma til verka fyrri kynslóða".

Ólafur Thors var dómsmálaráðherra í einn mánuð 1932 og skipaði þá Helga Tómasson að nýju í embætti yfirlæknis á Kleppi en rak Lárus Jónsson, sem Jónas hafði sett 1930þegar hann rak Helga. Sjá þar.

Guðmundur Magnússon, Thorsararnir, bls. 182: ,,...markmið hans (Jónasar) var að ganga á milli bols og höfuðs á valdakerfi og bræðraböndum sem þróast höfðu í landinu frá því á heimastjórnarárunum og fyrr".
Sbr: að 25/7 1930 víkur rh. Jónas frá embætti manni sem var í beinana karllegg af valdaætt sem ráðið hafði því sem hún vildi í landinu um hálfa öld til 1833. Sá ,,hafði átt harða rimmu við nágrannakonu, Sigríði Jónsdóttur í Brekkubæ", segir Helgi Hannesson í Þykkskinnu, 188.
Sjá og Guðfræðingatal 1957, bls. 252 og Ísl. æviskrár IV, 83.

Helgi Skúli Kjartansson, Samvinnuhreyfingin í sögu Íslands, bls. 66:
,,Enginn ráðamaður var eins (og Jónas) ....tilbúnn að hafa vit fyrir þeim og greiða götu þeirra sem hans ráðum vildu hlíta. Aðgangur að Jónasi var eitt af því sem skipti máli fyrir heilar kynslóðir upprennandi framsóknarmanna eða samvinnumanna. En hann sinnti ekki þeim einum. Þvert á móti vakti hann athygl með greiðasemi við annarra flokka fók líka".

Pétur Már Ólafsson í formála að Sölku Völku: ,,Jónas var í íhaldsblöðum stimplaður sósíalisti ef ekki kommúnisti". Í þeirri bók Laxness segir Bogesen kaupmaður m.m. á bls. 252: ,,...lestu ekki einu sinni Kvöldblaðið að sunnan? Veistu þá ekki hver er mannorðsþjófur og lygamörður íslensku þjóðarinnar, sá maður sem hefur sett sér það takmar að brjóta niður allar stoðir og styttur þjóðfélagsins og koma bæði þér og börnunum okkar á vonarvöl?"

Í Sölku Völku, bls. 382, lætur Halldór Laxness Arnald Björnsson segja: ,,Kristófer Torfdal er í fyrsta lagi maður gæddur dularfullri ástríðu til valda valdsins vegna, hann verður aldrei í rónni fyren hann fær að stjórna heilu landi og þess vegna hefur hann tekið sér fyrir hendur að brjóta niður völd afturhaldsmanna yfir atvinnuvegum og peníngastofnunum, hann er nefnilega ráðinn í að gefast ekki upp fyren hann stjórnar því öllu sjálfur. Hann er maður sem svífst eingra bragða og því hefur hann gert bandalag við okkur róttæklíngana ...litli fíngurinn á honum er slúngnari fjandmaður en sjálfræðisafturhaldið samanlagt".

Sigursteinn Steinþórsson, f. 1885 eða 1886, síðast fangavörður Litla-Hrauni, í viðtali við Guðmund Daníelsson, Þjóð í önn, 175-6: ,,...það vantaði veg frá Eyvindartungu upp að Laugarvatni. Nú datt Jónasi í hug það snjallræði að láta fangana á Litla-Hrauni leggja þennan veg. ...fengu sko ekki nema eina krónu á dag. ...Fangarnir um 12 að tölu ... í Hveragerði vorum við látnir leggja vegi og laga til í kringum eignir ríkisins á Stóru-Reykjum. ... við byrjuðum á Krísuvíkurveginum. Heilan vetur bjuggum við í skúr fyrir neðan Núpa í Ölfusi. ... Það liggur mikil vinna eftir fangana frá þeim tíma þegar Jónas frá Hriflu réði. Þeir byggðu til dæmis alla pallana á Laugarvatni og rauðamölsganvegina um skólasvæðið, þeir löguðu umhverfi Garðyrkjuskólans á Reykjum, þeir hlóðu fyrir álana sem renna í Markarfljót..."

Um Jónas Jónsson frá Hriflu verður ekki sagt að hafi unnið að eigin hag. Hafnaði gjöfum, m.a. - glæsihúsi frá SÍS, Hávallagötu 24 - en skilur eftir sig áþreifanleg dæmi þess sem hann fékk áorkað í þjóðar þágu. Um fyrirhugaðan ensk- eða fransk- fjármagnaðan banka sagði hann spámannlega 1914:
,,Hvernig færi um fjármálafyrirtæki af þessu tagi ef við hefðum ekki til umsjár og forsjár nema hættulega glæframenn? Nei, framfarir eru góðar þá fyrst þegar foringjar og liðsmenn eru siðmenntaðir menn” - bls. 302 í bók Guðjóns Friðrikssonar: Einar Benediktsson II. (1885, 1916, 1930, 1939, 1940).

Þorsteinn M. Jónsson í Stofnsögu Framsóknar-flokksins, bls. 48: ,,Orka Jónasar til starfa þá og lengi fram eftir ævi var óvenjuleg og nærri ótrúleg. Hann þurfti ekki að sofa nema örfá tíma á sólarhring. Á nóttunni, þegar aðrir menn sváfu, skrifaði hann ótal bréf og blaðagreinar. Á daginn sinnti hann skyldustörfum sínum, talaði við fjölda manna og túlkaði fyrir þeim hugmyndir sínar um það sem gera þyrfti þjóðfélaginu til framfara. Hann var og jafnan opinn fyrir öllu, er þeir menn, er hann ræddi við, höfðu fram að flytja í menningar- og atvinnumálum þjóðarinnar. En eins og starfsorka hans var ótrúlega mikil, þá var og minni hans og fjölþættur áhugi á öllu því, er til framfara horfði fyrir þjóðina, óvenjulegt."

Magnús Jónsson (1887Wikiwand (opnast í nýjum flipa) - 1958Wikiwand (opnast í nýjum flipa)) prófessor, og ráðherra D, skrifar í bók sinni, Páll postuli, bls. 284: ,,Sterkur þáttur í sálarlífi Páls, eins og flestra mikilmenna, er ráðríki hans og sjálfsþótti, hann verður alltaf foringi og hefir illa unað öðru."

Ævisögu Eysteins Jónssonar ritar Vilhjálmur Hjálmarsson. Bls. 57 í 2. bindi: ,,Jónas Jónsson leysti æsku Íslands nálega úr álögum með því að opna henni möguleika til framhaldsmenntunar með stórfelldum átökum í skólamálum, nýjum héraðsskólum og húsmæðraskólum, fjölgun og eflingu gagnfræðaskóla, nýjum menntaskóla og fjölgun tækifæra til langskólanáms".

Vefurfilmcentralen.dk (opnast í nýjum flipa)

MyndbandVimeo (opnast í nýjum flipa)

Reykjavík 1926, þögul kvikmynd:
VefurGoogle (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1928

  • Enginn flandur bar á brýn
  • Um Hvítár nýja bogabrú
← 1927Í Íslandsglímu skötnum skellti1928 →Enginn flandur bar á brýn