Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 20. öld
  3. 1928
1928
1928

Enginn flandur bar á brýn

Hljóðbrot0:00

Lag Fljúga hvítu fiðrildin

EEnginn flandur bar á brýná burði gatna ei vandurMýrdalssandur mátti sínminna en Vatna-Brandur.

Glúmur Gylfason · 1928

Heimildir og samhengi

Vatna-Brandur nefnist bók Sigþórs Sigurðssonar frá Litla-Hvammi í Mýrdal um ævi Brands Jóns Stefánssonar, bílstjóra (1906-1994), er byrjaði fólks- og vöruflutninga á Ford vörubíl til beggja átta frá Vík 1928, þ.e., áður en vegir voru lagðir og brýr smíðaðar þar um slóðir aðrar en á Jökulsá á Sólheimasandi.
Bílinn fékk Brandur fluttan upp að ströndinn ósamsettann með mb. Skaftfellingi í maí 1927.

1926 hafði hugvitsmaðurinn Bjarni Runólfsson í Hvammi keypt Ford T vörubíl beint frá útlöndum , sem skipað var upp í Skaftárósi í logni og dauðum sjó og róið í land. Bíllinn kom að notum við uppskipunarvinnu í Skaftárósi og ekið eftir sandinum til bæja.
Heimild: Guðjón Friðriksson, Samvinna á Suðurlandi, II, 78.

Vefureldsveitir.is (opnast í nýjum flipa)

Sem brautryðjandi - í bókstaflegri merkingu - varð Brandur Jón Stefánssona, bílstjóri (1906-1994) í Vík þjóðsagnapersóna í lifanda lífi, sjá 1776, 1907, og gekk undir nafninu Vatna-Brandur enda ók hann Ford TT vörubíl af árgerð. 1926 um flestar óbrúaðar ár á Suðurlandi aðrar en stórfljót.
Brandur á þátt, Vötnin ströng, á bls. 87 í bókinni Hálendið heillar, sem út kom 1975.

Kjartan Ólafsson, Verslunarsaga Vestur-Skaftfellinga II, 263:
,,Aldrei fyrr hafði bíl verið ekið sem leið liggur með bæjaröðinni undir Eyjafjöllum. Er bíllinn fór fram hjá Hvammi var verið að lesa húslesturinn. Börnin fóru þó á stjá þegar heyrðist til bílsins og er þau sáu hann skreiðast eftir þjóðgötunni hrópuðu þau upp að það væri að koma skrímsli. Allt fólkið þusti út á hlað nema móðir bóndans, Þuríður Jónsdóttir, fædd 1852, ...sem hélt lestrinum áfram".

Enn fremur um Vatna-Brand og flokkspólitíska farþegaflutninga hjá Guðjóni Friðrikssyni, Samvinna á Suðurlandi II, 106.

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)
FréttBændablaðið (opnast í nýjum flipa)
Ökuljóð: MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)


Myndir

Einnig frá árinu 1928

  • Mörgu í framkvæmd gat Hrifla
  • Um Hvítár nýja bogabrú
← 1928Mörgu í framkvæmd gat Hrifla1928 →Um Hvítár nýja bogabrú