Við Margréti átti margoft stapp
Lag Myrkur hylur mararás - Bj.Þ. 860
Við Margréti átti margoft stappuns mælinn fyllti korniðog að því kom að ekki slappEinar fyrir hornið.
Heimildir og samhengi
Guðjón Friðriksson: Einar Benediktsson III, 217:
,,Þegar allt er með felldu ríkir köld kurteisi milli Einars og Margrétar og þau þérast þá stíft.
Ef Einar verður hins vegar drukkinn kárnar gamanið. Ef hann er einn niðri (í Þrúðvangi) við skál á Margrét það til að draga þunga kistu eftir gólfinu uppi til að framkalla skruðninga. Hún veit sem er að skáldið er ákaflega myrkfælið og þetta dugir stundum til að flæma það út.
Þegar Einar er fullur byrjar Margrét að þúa tengdason sinn og vandar honum ekki kveðjurnar ...”
Bls. 253: ,,26. júlí 1927 skríður Lyra inn á höfnina (í Rvk.). Meðal farþega er Einar ... Hann heldur rakleiðis í Þrúðvang. ... En Valgerður og börnin heima eru dauf í dálkinn og Margrét gamla Zoëga notar fyrsta tækifæri sem gefst til að hella sér yfir skáldið, tengdason sinn, fyrir ónytjungshátt. Þau rífast heiftarlega.
Skömmu síðar tilkynnir Margrét þeim Einari og Valgerði að þau verði að flytjast burt úr húsi hennar”.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Bls. 254: ,,...Þau taka á leigu til bráðabirgða stóra stofu á annarri hæð timburhússins Veltusund 1 og vísa gluggar hennar út að Hafnarstræti”. Einar og Valgerður skildu í nóvember 1928.
Í 15 ferm. íbúð í bakhúsinu Sílóam, Grundarstíg 15B bjó Einar hjá Kristínu systur sinni frá vori 1929 til ársloka 1930.
(Heimild: Guðjón Friðriksson, ævisaga Einars Benediktssonar).
Slóð á mynd af Margréti Zoëga: Vefursafneign.listasafnreykjavikur.is (opnast í nýjum flipa)
Í Þrúðvangi er nú rekið 5 stjörnu gistihús.
Söngur Soffíu frænku:VefurGoogle (opnast í nýjum flipa)