Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 20. öld
  3. 1927
1927
1927

,,Hólaskóli" á Akureyri

Hljóðbrot0:00

Lag Þegar ég geng út og inn - Bj.Þ. 878

HH,,ólaskóli" á Akureyriútskrifi stúdentaNorðlendingar fagna að fleirifái sett til mennta.

Glúmur Gylfason · 1927

Heimildir og samhengi

,,Hólaskóli": Norðlendingar héldu umræðu vakandi um það óbætta tjón sem þeim var að því að Hólastóll og skóli voru lagðir niður um aldamótin 1800. Það greiddi fyrir stofnun Möðruvallaskóla 1880 og því, að sá skóli, sem nú var kominn til Akureyrar og hét Gagnfræðaskóli Akureyrar, fékk ráðherraheimild frá Jónasi Jónssyni frá Hriflu til að kenna til stúdentsprófs 1927 og breytti um nafn er þeir nemendur luku stúdentsprófi 1930 og heitir síðan Menntaskólinn á Akureyri.

Reyndar byrjaði skólameistari, Sigurður Guðmundsson, þegar 1923 með lærdómsdeild við skólann og tóku 6 nemendur þaðan stúdentspróf 1927 sem haldið var í MR.
Stúdentsnám utan Reykjavíkur varð pólitískt deilumál – en ,,andstæðingar Jónasar sáu sig ávallt knúna til þess að vera á andstæðri skoðun við hann" - segir Sjálfstæðismaður í Reykjavíkursögu Guðjóns Friðrikssoar - sjá 1930.
Saga Akureyrar IV, bls. 58, staðfestir, að pólitískir andstæðingar Jónasar nyrðra lögðust gegn menntaskóla þar 1930 - væntanlega af fyrrnefndri ástæðu.

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
AlfræðiWikipedia (opnast í nýjum flipa)
Vefurglatkistan.com (opnast í nýjum flipa)

FréttRÚV (opnast í nýjum flipa)

Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1927

  • Krani flytur kol í haug
  • Við Margréti átti margoft stapp
  • Út þá Vefari Kiljans kemur
  • Í Íslandsglímu skötnum skellti
← 1927Krani flytur kol í haug1927 →Við Margréti átti margoft stapp