Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 17. öld
  3. 1636
1636
1636

Prestur hlaut spyrja sig sjálfan og svara

Hljóðbrot0:00

Lag Komdu og skoðaðu í kistuna mína

PPrestur hlaut spyrja sig sjálfan og svarasagðist þá vilja h'ana Guðrúnu, já!Brotlegur hlaut svo úr brauðinu faraog biskupsins frændi hlaut Vatnsfjörðinn þá.Sá, Gísli, er svo hrumur og gugginn að sjáað gæti við unað ef Stað mætti náí Vatnsfjörðinn sjálfsagður, erfingi Araí Ögri og síst munu kílóin fá.

Glúmur Gylfason · 1636

Heimildir og samhengi

Séra Jón Loftsson (~ 1539 - ~1606) í Vatnsfirði gifti sig sjálfur Guðrúnu Sigmundsdóttur um 1593, þess vegna settur frá embætti 1595 og afhenti staðinn 1596, sjá þar.
Annáll segir sr. Jón Loftsson þá ringlaðan orðinn. Hann hafði verið prófastur þar vestra og settur rektor í Skálholti var hann veturinn 1555 til 1556.
Fékk þá Vatnsfjörð hálfbróðir Odds biskups, sr. Gísli Einarsson, og varð prófastur.
HeimildTímarit.is (opnast í nýjum flipa)
Ath. villu í ofanrituðu, þar er Hólmfríður nefnd Margrét.

Jón skáld og prestur Arason (Ögri) fær Vatnsfjarðarbrauð eftir aðdraganda sem Hannes Þorsteinsson fjallar ýtarlega um í formála að Vatnsfjarðarannál elsta í Íslenskum annálum 1400-1800, og Gils Guðmundsson í ,,Frá ystu nesjum" II, 81, en Vatnsfjarðarprófasti og Ara sýslumanni kom aldrei saman og hlaut klerkur þá að víkja.
1596 hafði sr. Jón Loftsson afhent Vatnsfjörð sr. Gísla Einarssyni, hálfbróður Odds biskups, eftir að hafa verið dæmdur frá embætti fyrir að gifta sig sjálfur nefndri Guðrúnu Sigmundsdóttur. Eftir 40 ár var sr. Gísla nú gert að víkja til Staðar á Reykjanesi við Breiðafjörð fyrir ungu prestshjónunum stórættuðu, sr. Jóni Arasyni í Ögri og brúði hans, Hólmfríði, sem var enn skyldari þáverandi biskupi, Gísla Oddssyni, en sr. Gísli, því að hún var Sigurðardóttir yngra Oddssonar biskups (sjá 1617).
Oddur biskup, afi Hólmfríðar, og sm. Ari í Ögri, faðir brúðgumans, voru stærstu menn á Alþingi og stóðu upp úr mannfjöldanum. Líkt má hafa gilt á þverveginn, sbr. börn þeirra Vatnsfjarðarhjóna, sem hestar fengu lítt borið og hlutu flest viðurnefnið digri(a), t.d. Ragnheiður digra á 5000 kr. seðlinum, (1715) og Oddur digri (1689).

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Myndir

← 1635Jafna ætlar illa að ganga1637 →Gudda kona ekki ein