Hólakirkja frá oss fauk,
Lag Eins í vöku og eins í blund - Bj.Þ. 829
Hólakirkja frá oss fauk,flogin upp til skýjaHalldóra staðinn hélt og laukhelgidóminum nýja.
Heimildir og samhengi
Hólakirkja hin forna fauk, byggð 1395, eftir að kirkjan frá um 1300 hafði fokið árið áður. Sú sem fauk 1624 var rúmir 700 fermetrar og kennd við Pétur Nikulásson, danskan Hólabiskup.
Herra Guðbrandur biskup, f. 1541, var áður lagstur í kör og þessu leyndur, en Arngrímur lærði varð officialis in spiritualibus, þ.e., gegndi biskupsstörfum, en Halldóra Guðbrandsdóttir (1558) officialis in temporalibus, og þar með staðarhaldari og stóð fyrir smíði nýrrar kirkju sem við hana var kennd. Halldórukirkja vék fyrir núverandi Hóladómkirkju, þeirri sem lokið var 1763. Halldóra hélt umboði sínu með tilstyrk kóngs eftir að mágur hennar, Ari í Ögri, hafði fengið alþingi til að svipta hana því. Ari óttaðist að arfur konu sinnar, Kristínar, kynni að rýrna í höndum Halldóru systur hennar og ætlaði sér umsjónina. Í Ísl. æviskrám orðað svo: ,,...mun hann (Ari) hafa þótt nokkuð harðdrægur og ekki vildi Halldóra hafa nokkur afskipti hans af stólsforráðum eftir að Guðbrandur biskup, tengdafaðir hans, gat ekki lengur sinnt forráðum þar vegna veikinda (bréf Halldóru 29. ágúst 1625) enda var Ara með konungsbréfi bannað að viðlagðri hegningu að hafa nokkur afskipti af stólnum eða eignum hans".
Um Ara segir Gils Guðmundsson í ,,Frá ystu nesjum", 5. hefti, bls. 31: ,,stórauðugur, fégjarn, féfastur, viðsjáll, skilaði ekki Þingeyraklaustri í hendur Páli Guðbrandssyni (mágs síns) fyrr en skyldaður til með dómi og ætlaði að gera börn hans arflaus".
Um Halldóru, sjá Sögu Íslands VI, 141.
Kirkjan í St. Gallen, Sviss, flýgur hér upp til skýja: