Sigling utan fengu frítt
Lag Fyrr var oft í Koti kátt
Sigling utan fengu fríttog fjögur ár á Garðiöl og brenni að yrði hlýtt- enginn sér þar barði -einn í sæng var enn eitt nýttí undrun landinn starðief bóka- gerðist brautin grýttBakkus fáa sparði.
Heimildir og samhengi
Kaupmannahafnarháskóli fékk Klaustur Heilags Anda tekið undir heimavist stúdenta, Regens, sem Íslendingar nefndu Garð.
Sívaliturninn kom þó ekki fyrr en 1642/3
Í einokunarrétti kaupmanna fólst sú kvöð, að flyttu stúdenta endurgjaldslaust utan. Breyttist síðar í að stúdentar fengu flutningskostnað greiddan að loknu inntökuprófi.
Íslendingar nutu forgangs til vistar á Garði um 4 ár með ókeypis fæði og drykk (öl), eldivið, þjónustu til fata og hreingerninga auk vasapeninga, sem eftir myntbreytinguna 1875 voru 40 kr. á mánuði, þegar Tryggvi Gunnarsson taldi 30 duga, en árslaun vinnukvenna voru á því róli þegar best lét (sjá Guðjón Friðriksson: Einar Benediktsson, I, 98, 105).
Einnig fengust styrkir, til bóka- og fatakaupa. Lagsmenn voru engir á Garði, en í íslensku skólunum var lengi þrímennt í hverri sæng (rekkju).
Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)
Dæmi voru um að Íslenskir stúdentar lifðu svo spart, að legðu fyri af Garðstyrknum (1867) en fleiri sneru þó próflausir heim vegna skulda. Komust þá síður í feit embætti en gerðust stundum róttækir stjórnmálamenn ef þeir kenndu Dönum um ófarir sínar. Umsögn Ísl. æviskráa um aðra lýkur svo: ,,..stundaði nám í háskólanum í Kh. Drukknaði þar".
Eftir 1918 voru ekki teknir íslenskir nýnemar inn á Garð og hvarf sá síðasti þaðan 1923.
HeimildTímarit.is (opnast í nýjum flipa)
Tómas Sæmundsson, þá stud theol, ritar Jónasi Hallgrímssyni 1828. Hann er þungorður um íslensku stúdentana sem á Garði búa og gera ekki annað en taka út Garðstyrkinn til að spila því og hóra út um kvöldið, þess vegna veitir ekki af að einn eða tveir komi betri á millum ,,því að annars tapar vesalings Ísland bráðum öllum þeim stóru privilegium, sem það nýtur fram yfir hinar ,,Provinserne" í ríkinu"".
Tekið úr ,,Með vorskipum" eftir Sverri Kristjánsson, bls. 159.
Sama bréf Tómasar: ,,Íslendingar eiga hér svo gott í Danmörku sem mögulegt er því við fáum fyrir utan Regens og brenni 12 Rdl. gratis á hverjum mánuði og ...jafnan aðgang til allra stipendia en þeir (danskir) mega ...oft bíða 3 og 4 ár þar til þeir fá nokkuð".
1759 birt konungleg tilskipun um að Stólskólarnir mættu árlega senda 1 pilt hvor til ókeypis stúdentsnáms í Danmörk. Fáir fóru. Dæmi: Páll Árnason frá Holti u. Efj., bróðir Valgerðar (1822, 1872).
Enn eigum við í greiðsluvanda í Kaupmannahöfn:
Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)