Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 19. öld
  3. 1882
1882
1882

Mislingar búa mörgum gröf.

Lag Allt fram streymir endalaust

MMislingar búa mörgum gröf.má um voga stikla,,fræ ei spíra, fé á gjöf"frostasumarið mikla.

Glúmur Gylfason · 1882

Heimildir og samhengi

Fyrsti mislingafaraldur síðan 1846.
Árni Óla, Reykjavík fyrri tíma, bls. 414, er heimild sem segir m.a., að mislingar hafi borist með Helga Helgasyni (1875) sem kom slappur frá Kh. 2. maí. Í Reykjavík bjuggu ~2.600 manns. Frá 3. júní til 9. ágúst dóu þar úr mislingum ~120 manns.
1918 bjuggu í Rvk. ~16.000 og dóu þá ~300 úr Spönsku veikinni.
Út um landið bárust mislingarnir með skólapiltum og vermönnum.

Mislingar í sveitum: Hólmfríður Hjaltason, skrásett af Elínborgu Lárusdóttur, Tvennir tímar, bls. 49:
,,Á sumum bæjum lögðust allir í einu og lágu í kös í baðstofunum og gátu enga björg sér veitt ...veikin var á hverjum bæ og sérhvert heimili var báglega statt og þarfnaðist hjálpar. Mislingarnir lögðust þungt á marga og margir dóu, en þeir sem lifðu af voru lengi að ná sér og sumir báru aldrei sitt barr. Olli það mjög, að matur var af skornum skammti og sums staðar ekki til þar eð ekki varð farið á sjó. Kýrnar þornuðu upp. Kvíaær týndust því að enginn var til sem sinnt gat skepnunum”.

Kaldasta sumar sem mælst hefur. Þjóðólfur XXXIII, 6 segir Breiðafjörð ísilagðan frá Bjargtöngum að Rifstá í mars.
Hafís allt til Djúpavogs og á Hrútafirði fram í september. Skip fraus inni í hestheldum ís við Stykkishólm í maí, fé fennti og misfórst um alla Húnavatnssýslu eftir sumarmál, vetrarís enn á Ólafsfjarðarvatni 6. júlí. Tíu sinnum alsnjóa nyrðra frá Jónsmessu til rétta, en 25. febrúar mesti hvalreki sögunnar er 31 hvalur, 20-22 m að lengd strönduðu við Ánastaði á Vatnsnesi og bjargaði það mörgum á NV-landi og í Borgarfirði.
Af Snæfellsnesi nefnir Oscar Clausen 8 dæmi um að menn hafi dáið af ófeiti, en fénaðarfellir ógurlegur. Í Kolbeinsstaðarhreppi einum fóru 10 jarðir í eyði og fólkið flest til Ameríku. (OC, Hallæri og gjafkorn).

Samskot vegna ástandsins voru tekin í Noregi og í Danmörk fyrir frumkvæði Íslandskaupmanna. Í reiðufé söfnuðu þeir og sendu yfirvöldum 136.000 kr. en með tveimur skipum m.a. rúmlega 1.000 smálestir af korni og 400 bagga af heyi. Sjálenskir bændur og bakarar óku afurðum sínum sjálfir til skips.
Aðrir kaupmenn litu samskotin hornauga og sögðu gerð í eiginhagsmunaskyni - svo að skuldir fengjust greiddar síðar. (OC, Hallæri og gjafkorn).
Frá sama hugarfari greinir Ágúst Helgason í Birtingaholti í Endurminningum, bls. 112: ,,Hann (Helgi faðir Ágústs) hafði fyrir reglu að birgja sig vel af kornmat á sumrum svo að hann gæti hjálpað þeim sem kæmust í þrot á vetrum. Sumir lögðu þá hjálpsemi hans svo út, að hann gerði það í gróðaskyni".

Frá Englandi kom Eiríkur Magnússon, bókavörður þar á Kambabrú, á gufuskipi hlöðnu korni og matvælum sem útbýtt var um land allt. Hann hafði ritað í þarlend blöð um neyðina á Íslandi og brugðust enskir vel við þar til Guðbrandur Vigfússon, kennari í Öxnafurðu, ritaði í Times og gerði söfnunina tortryggilega: ,,engin þörf á að safna handa lötum Íslendingum", en þeim Eiríki var ekki vel til vina.
Næstu samskot erlendis handa Íslendingum voru 1896 vegna Suðurlandsskjálftans það ár.

Skjalmosi.blog.is (opnast í nýjum flipa)

Frá Látrum á Látraströnd náðust 13 háhyrningar í vök nærri landi og veiddir 100 hákarlar utar upp um ís.
1.300 sauðir Hreppamanna féllu á afrétti. Rangæingar náðu hröktum heyjum inn í lok október og brann víða; ,,Sigurður Jónsson frá Syðstu-Mörk gekk Ölfusá og Þjórsá á ís í lok maí".
,,Djúpið ísi lagt og mátti ganga fyrir alla firði, allt til Bolungarvíkur", ritar Árni Gíslason, Faðir minn, skipstjórinn, bls. 21.
Harðindunum frá 1881 slotaði eftir 1887.

3. lína 1. vísu er tekin frá Kristleifi Þorsteinssyni, Úr byggðum Borgarfjarðar I, bls. 104. Á þar við tímann frá og með janúar.

Jón Trausti, Samtíningur, Vorharðindi, 2. bindi, bls. 220: ,,21. júní var aftur stórhríð fyrir norðan, og ennþá 6. júlí. ...lömbin hrundu niður jafnóðum og þau komu úr móðurlífi. ...Ofan á þetta bættust við mislingarnir. ...Gaddur var yfir alla jörðina. Það sem sólin bræddi á daginn ...hljóp í svell á nóttunni. ...lá jafnan einhver frostmóða yfir jörðinni. Stundum sló yfir svarta þoku ...þessi þoka var full af ísnálum, sem hörundið sveið undan. ...Svo kom þriggja daga stórhríðin ...og slétti vandlega yfir alla þessa auðu og köldu bletti - og hræin af öllu sem þar hafði króknað. ...Um manneskjurnar ætti ég sem fæst að tala. Ef ég segði allt sem satt er mundu fáir trúa mér. Þar að auki mundi mér vera borið á brýn að ég níddi landið. ...Það sem læknirinn segir í sögunni Þorradægur, stendur á dýrkeyptri reynslu frá þessum árum".

Séra Ágúst Sigurðsson: Forn frægðarsetur IV, bls. 78: ,,...fjöldi fólks dó úr hinum hættulega sjúkdómi (mislingum), en svo var hart um sláttinn, að alsnjóaði hvað eftir annað og hallærisástand ríkti í landinu".

Aðrar heimildir m.a: Hildur 1982: Íslenskir sagnaþættir bls. 68;
Theódór Arnbjörnsson : Sagnaþættir úr Húnaþingi, 111, eftir frásögn Jóns, sonar Eggerts b. Ánastöðum, Ísafoldarprentsm. 1941;
Dr. Hannes Þorsteinsson, ævisaga;

Bragi Guðmundsson: Héraðsstjórn í Húnaþingi bls. 47;
Guðm. Hagalín: Virkir dagar, 2. bindi bls. 238

Minningar Sigurðar frá Syðstu Mörk, útg. 1950.
Lárus í Grímstungu, Forl. Odds Björnssonar 1981, bls. 12.
Guðjón Friðriksson, Einar Benediktsson I, bls. 79;
AlfræðiWikipedia (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1882

  • Ár enn frjósa á ári nýju
  • Skelfir menn og skepnur frost
← 1882Skelfir menn og skepnur frost1883 →Elliðaám til bóta brýr