Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 19. öld
  3. 1882
1882
1882

Skelfir menn og skepnur frost

Lag Allt fram streymir endalaust

Lag Þingeyinga

SSkelfir menn og skepnur frostskuldir bændur þvingabýður önnur kjör og kost

Glúmur Gylfason · 1882

Heimildir og samhengi

Einn harðasti vetur, ef ekki sá harðasti í sögu landsins.

KÞ, Kaupfélag Þingeyinga, stofnað að Þverá í Laxárdal 20. febrúar að frumkvæði Jakobs Hálfdanarsonar á Grímsstöðum og Benedikts Jónssonar á Auðnum. Var pöntunarfélag í byrjun, en sölubúð sett á fót á Húsavík 1889.
Grána kom aðeins einu sinni til Húsavíkur með vörur. Það var 1871, segir í Sjálfsævisögu Jakobs Hálfdanarsonar, bls. 96.
Tryggva Gunnarssyni þótti umfang verslunar þar of lítið til að sinna því sérstaklega, en þá var enn engin bryggja á Húasavík. Dró það til samtaka Þingeyinga um KÞ 1881-2, sem þótti Grána vera farin að semja sig að háttum kaupmanna í vöruverði segir í fyrrnefndri ævisögu JH.
Svalberðingar stofnuðu 1887 sitt eigið kaupfélag. (Sama heimild).

Ævisaga Hallgríms Kristinssonar eftir Pál H. Jónsson: Úr Djúpadal að Arnarhóli, bls. 67, úrdráttur:
Kaupfélagið hafði ekki yfir neinu rekstrarfé að ráða. Lánastofnanir voru ekki til í landinu, en lánadrottinn fannst, sem tilbúnn var að lána þar til gjaldeyrir bænda félli til, vor og haust. Sá bjargvættur íslenskra kaupfélaga um langt skeið var Louis Zöllner í Newcastle. Zöllner þessi var danskrar ættar. Með honum í för var oft sonur hans, Fred, sem komst eitthvað niður í íslensku. Hann var túlkur Breta í Reykjavík þegar þeir hernámu Íslands 10. maí 1940.

Fyrsta ,,kaupfélagið" stofnuðu vefarar í Rochdale - um 10 km í N frá miðju Mancester í Engladi - árið 1844.
Í Sjálfsævisögu tekur Jakob Hálfdanarsonar skýrt fram á bls. 137 og enn á bls. 195, að þeir, stofnendur KÞ, hafi hvorki vitað af vefurunum í Rochdale né nokkrum erlendum kaupfélögum þegar þeir réðust í að stofna sitt félag.

Minningabók Magnúsar Friðrikssonar, Staðarfelli, bls.111: ,,Afleiðingar af Frostavetrinum mikla og vorinu 1882, voru meðal annars þær, að bændur komust í miklar skuldir hjá kaupmönnum bæði vegna fjárfellis og afurðarýrnunar, jafnframt miklum fóðurkaupum þau árin. Flestir kaupmenn ...undu þessari skuldaaukningu illa ...Leituðu nokkrir þeirra aðstoðar lögregluvaldsins við innheimtuna".

Fegurð himinsins (H. Laxness), 7. kafli: ,,Vitavörðurinn sagðist ekki skilja hvernig sú þjóð sem nú væri upp á Íslandi gæti verið komin af fornmönnum. ...(og) sagði að danir hefðu spillt íslensku þjóðinni. ...danskir kaupmenn hefðu ævinlega kúgað alþýðuna ...ekkjan vildi gera gott úr öllu og sagði að kaupmaðurinn Kristensen væri aðeins danskur að langfeðgatali og þó ekki nemna í aðra ætt. Mér er sama hvað þú segir, sagði vitavörðurinn. Í mínum augum eru allir kaupmenn danskir".

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)

Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1882

  • Ár enn frjósa á ári nýju
  • Mislingar búa mörgum gröf.
← 1882Ár enn frjósa á ári nýju1882 →Mislingar búa mörgum gröf.