Jafnkosta var Jónas við
Jafnkosta var Jónas viðjárningar og söngaflinn sem og orgeliðundirleik og töng.
Brynjólfur þekkt Bakkus munbetur en nefndin vildier sagðist við það ekki un-a og leiðir skildi.
Heimildir og samhengi
Af starfi dómorganista lét 1903 Jónas Helgason (1839-1903), sem sem var 2. í röð dómorganista og tók við af Pétri Guðjónssyni (sjá 1840) sem lést 1877.
Jónas Helgason hafði verið ,,reglumaður og samvikusamur með afbrigðum ... voru til þeir hestamenn í Reykjavík sem vart trúðu öðrum fyrir því að járna hesta sína ... og mátti sjá dómkirkjuorganistann snöggklæddan, vera að járna góðhesta gamalla viðskiptavina".
,,Dómkirkjan í Reykjavík" eftir Þóri Stephensen, II. bindi frá bls. 168.
Þar segir og að Jónas hafi haft sveinsbréf í járnsmíði, verið söngvari við útfarir, leikið á fiðlu og harmoníum og stjórnað Söngfélaginu Hörpu, sem hann stofnaði ásamt öðrum 1862.
1874 hélt hann svo utan til Kaupmannahafnar og nam þar tónlist í tvö ár uns hann við lát Péturs dómorganista Guðjónssonar varð eftirmaður hans til 1903.
Við orgelinu tók Brynjólfur Þorláksson (1867-1950), þetta ár og gegndi til 1913. Sóknarnefnd gerði Brynjólfi að gerast bindindismaður á vín, sem tókst ekki og lauk svo starfi hans við Dómkirkjuna. 2. janúar 1913.
Frá þessu segir á bls. 171 í II. bindi sr. Þóris Stephensen: ,,Dómkirkjan í Reykjavík", og að 1903 hafi fyrst komið fram opinberlega blandaður kór í Dómkirkjunni undir stjórn Brynjólfs Þorlákssonar og söng lögin frá útför forsetahjónanna 1880, sjá 1879.
HljóðritÍsmús (opnast í nýjum flipa)