Fyrstur kom og fyrstur hlaut
Fyrstur kom og fyrstur hlautsá fyrsta lagði grunninnheim til hans er bikuð brautog bílaöld upprunnin.
Heimildir og samhengi
Ingólfur Arnarson og Hallveig Fróðadóttir urðu árið 874 fyrstu húsráðendur í Reykjavík. Eftir fornleifauppgröft er hús þeirra sagt hafa staðið við syðri enda Aðalstrætis, en sú gata hafi líkega fyrst verið troðningur norður til sjávar.
Á árunum 1912 til 1918 er komið malbik á þær götur sem liggja til austurs frá Aðalstræti: Hafnarstræti, Austurstræti, Kirkjustræti auk Pósthússtrætis og Suðurgötu til kirkjugarðsins.
Að ekkert sé skráð um Aðalstræti bendir ákveðið til þess að það hafi verið malbikað fyrst.
Gufuknúinn valtari sem nefndur var Bríet eftir frú B. Bjarnhéðinsdóttur, var notaður við malbikunina.
Árið 1916 voru 30 bifreiðar í landinu og 1918 komu 27 í viðbót.
AlfræðiVísindavefurinn (opnast í nýjum flipa)
Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)
HeimildFerlir (opnast í nýjum flipa)
AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)
AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)