Trútt skulu gilda nú þau norm
Trútt skulu gilda nú þau normný er setti Óli Wormer Heimskringlu Snorra færði í formfrægastan síðan bókaorm.
Heimildir og samhengi
Gils Guðmundsson: Faðir norrænnar fornfræði, Gestur 5, bls. 186, endursagður úrdráttur:
Fyrir og eftir aldamótin 1600 hófst fornmenntastefna á Norðurlöndum. Fræðimenn tóku að gefa gaum norrænum fornritum og fornsögu Norðurlandaþjóða. Varð þá ljóst að til voru á íslensku merkileg rit um fornsögu þeirra. Norski presturinn P.C.Friis hafði um aldmótin þýtt á dönsku konungasögur Snorra Sturlusonar, sem gengu á milli fræðimanna í handritum.
Fremstur á Íslandi var Arngrímur lærði Jónsson, sem gaf út í Hamborg bækur tvær, Íslandslýsingu og Crymogæa, og kemur þá einnig til sögunnar faðir norrænna fornfræða, Ole Worm, danskur, f. 1588, d. 1654.
Worm var fjölmenntaður að þeirrar tíðar hætti eftir nám við háskóla í a.m.k. fjórum evrópulöndum. Þegar Worm sneri sér að norrænum fræðum átti hann m.a. samkipti við Arngrím lærða, Þorlák biskup Skúlason, síra Magnús Ólafsson í Laufási, Brynjólf biskup Sveinsson og Runólf Jónsson, Hólarektor, en bjargaði öðrum úr nauðum: Jóni lærða Guðmundsyni (1612,1631) og Guðmundi Andréssyni (1683).
Fyrrnefnda danska þýðingu á konungasögum Snorra Sturlusonar, að viðbættum skýringum, tímatali og heimildum, bjó Worm til prentunar 1633. Þar leiðréttir hann þá útbreiddu missögn að ,,Konungabókin" svonefnda sé rituð af Ísleifi biskupi og segir að Heimskringla sé rituð af Snorra Sturlusyni og gefur stutt yfirlit um ævi Snorra. Með þessum hætti varð Worm fyrstur til að gera Snorra kunnan sem sagnaritara. Íslendingar höfðu sjálfir gleymt sagnaritun hans og þekktu hann einungis sem Edduhöfund. Arngrímur lærði kemst svo að orði í bréfi, að Worm hafi hafið Snorra upp úr myrkri nótt gleynmskunnar, og er það sannmæli. Óli Worm er einhver mikilhæfasti og áhrifamesti maður erlendur, sem sinnt hefur norrænum fræðum fyrr og síðar. Er nafn hans órjúfanlega tengt sögu íslenskra bókmennta og þjóðmenningar.